Ísbjörn á broti af ísjaka

Lífverur og loftslagsbreytingar

Nemendur velja sér lífveru og skoða hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa á hana. Nemendur velta fyrir sér því hvað það er sem lífverur þurfa og hvað sé hægt að gera til þess að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga.

Tími: 2-4 kennslustundir

Aldur: miðstig og unglingastig

Markmið:

Að nemendur átti sig á áhrifum loftslagsbreytinga á lífverur.



Þetta verkefni úr námsefninu Sjálfbærni, sem Menntamálastofnun gaf út. Námsefnið samanstendur af rafbók, myndböndum og greinargóðum verkefnabanka með um 70 verkefnum en auk þess fylgir námsefninu gæðakannanir þar sem nemendur geta metið stöðu sína og síns nærumhverfis.

Námsefnið má finna í heild sinni á vef MMS: Um vefinn – Sjálfbærni (namsefni.is)

Fara beint á rafbók: Heim – Sjálfbærni (namsefni.is) og Sjálfbærni (mms.is)

Fara beint í verkefnabanka: Sjálfbærni – verkefnabanki (mms.is)

Tengd verkefni

Hnattræn hlýnun eða loftslagsbreytingar?

Nemendur greina muninn á hnattrænni hlýnun og loftslagsbreytingum. Kynna sér orsakir og afleiðingar og miðla þekkingu sinni á fræðilegan og skapandi hátt.

Vistspor

Ef öll lifðu eins og Íslendingar þyrftum við að minnsta kosti 6 jarðir til þess að standa undir neyslu okkar. Munur á vistspori þjóða er mikill og endurspeglar ójöfnuð heimshluta. Í þessu verkefni skoða nemendur sitt eigið vistspor og finna leiðir til þess að minnka það.

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is