skeljar á strönd

Skelin

Nemendur vinna með loftslags- eða umhverfisvandamál sem þau velja sér sjálf eða hafa unnið með í öðru verkefni eins og t.d. Kryfjum vandamálið. Nemendur skoða mismunandi leiðir til að bregðast við vandamálunum og greina hvaða aðgerðir einstaklingar, fjölskyldur, skólar, sveitarfélög og stjórnvöld geta farið í.

Tími: 1-2 kennslustund

Aldur: miðstig, unglingastig, framhaldsskóli og háskóli

Markmið:

Að nemendur leiti lausna við því umhverfisvandamáli sem þau hafa valið sér (t.d. loftslagsbreytingar, ofnotkun auðlinda, mengun, líffræðilegur fjölbreytileiki o.fl.).

Að nemendur átti sig á að ábyrgð og lausnir liggja á mörgum sviðum samfélagsins, ekki eingöngu hjá einstaklingum.

Framkvæmd:

Notast má við skelina eða nemendur teikna sjálfir upp sína útgáfu að skelinni.

Lykilspurningar

  • Hvað geta stjórnvöld gert til að bregðast við þessu umhverfisvandamáli?
  • Hvaða stefnumótun eða lög gætu hjálpað til?
  • Hvað getur skólinn gert til að draga úr áhrifum sínum og stuðla að lausnum?
  • Hvernig getur samfélagið eða fjölskyldan þín tekið þátt í að bæta ástandið?
  • Hvernig getur þú sjálf/ur haft jákvæð áhrif?
  • Hvaða lausnir eru þegar til og hvaða nýjar hugmyndir gætu hjálpað?

Aðferð

  1. Nemendur afla sér upplýsinga um málefnið og skoða mismunandi mögulegar lausnir: einstaklingsbundnar, félagslegar, tækni- og stjórnsýslulegar.
  2. Nemendur skrifa hugmyndir inn í skelina:
    • Ég sjálf/ur
    • Fjölskyldan
    • Skólinn
    • Sveitarfélag/stjórnvöld
    • Samfélagið/heildarlausnir
  3. Nemandi velur eitt atriði sem honum finnst raunhæft að framkvæma sjálfur og gerir áætlun um framkvæmdina.
  4. Nemandi velur annað atriði sem hann vill koma á framfæri við fjölskyldu, skóla eða stjórnvöld, t.d. með bréfi, kynningu eða myndræna skýringu af lausn.

Tengd verkefni

Hnattræn hlýnun eða loftslagsbreytingar?

Nemendur greina muninn á hnattrænni hlýnun og loftslagsbreytingum. Kynna sér orsakir og afleiðingar og miðla þekkingu sinni á fræðilegan og skapandi hátt.

Vistspor

Ef öll lifðu eins og Íslendingar þyrftum við að minnsta kosti 6 jarðir til þess að standa undir neyslu okkar. Munur á vistspori þjóða er mikill og endurspeglar ójöfnuð heimshluta. Í þessu verkefni skoða nemendur sitt eigið vistspor og finna leiðir til þess að minnka það.

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is