Dagur íslenskrar náttúru er haldinn 16.september ár hvert. Skólar eru hvattir til að gera deginum hátt undir höfði og nýta sér verkefni í tengslum við daginn sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Grænfáninn, Landvernd og Miðstöð útivistar og útináms hafa lagt til
Námskeið fyrir kennara og heimsóknir skólahópa í Alviðru haustið 2025
Alviðra er ævintýraheimur og fræðslusetur Landverndar og býður nemendur, kennara og námshópa velkomna til útiveru og kennslu á tímabilinu frá 8. september til 11. október.
Kærar þakkir til Bolette
Við hjá Grænfánanum þökkum Bolette, fráfarandi skólastjóra Þjórsárskóla og verkefnastjóra Grænfánans, fyrir einstakt starf og eldmóð í þágu náttúru og umhverfis. Undir hennar stjórn hefur skólinn verið virkur þátttakandi í Grænfánaverkefninu og sýnt mikinn metnað í umhverfismálum. Bolette hefur stuðlað að mörgum öflugum verkefnum í tengslum við Grænfánann, meðal annars Vistheimtarverkefninu. Þar lærðu nemendur um mikilvægi náttúruverndar í verki og fengu dýrmæta reynslu af því hvernig við getum öll lagt okkar af mörkum til að bæta umhverfið. Stuðningur Bolette við nemendur og starfsfólk skiptir sköpum fyrir árangur skólans í verkefninu og hefur henni ávallt tekist að vekja áhuga nemenda í umhverfisnefnd. Við sendum Bolette okkar bestu þakkir og óskum henni velfarnaðar í næsta kafla. Leyfum yfirmarkmiðum Þjórsárskóla í Grænfánaverkefninu að fylgja með • Styðja alþjóðlega umhverfisvernd og vekja nemendur til umhugsunar um sameiginlega ábyrgð• Nemendur fræðist um mikilvægi þess að ganga vel um náttúruna.• Skóli og heimili taka höndum saman um að efla ábyrgð nemenda gagnvart nánasta umhverfi sínu.• Örva og efla vitund nemenda um gildi þess að umgangast landið af virðingu• Nemendur læri um mikilvægi þess að það sem er náttúrulegt hverfi aftur til náttúrunnar og sé endurnýtt.• Umhverfisvitund verði eðlilegur þáttur í menningu og daglegu lífi.
Dagur umhverfisins – afmælisdagur Grænfánans
Til hamingju með daginn… kæru Grænfánaskólar! Í dag fögnum við sérstaklega enda ekki einungis Dagur umhverfisins heldur líka 23 ára afmæli Grænfánans á Íslandi. Af því tilefni settum við saman pakka sem inniheldur hugmyndir hvernig nýta megi vordagana í útiveru og náttúruupplifun. Við leggjum áherslu á lífbreytileika, náttúruvernd og á það að njóta náttúrunnar í nærumhverfinu. Pakkinn inniheldur eftirfarandi: Útprentaleg verkefni fyrir alla aldurshóp Hugmyndir að útileikjum Smellið á myndina til þess að opna pakkann Látum ekki örlitlar skúrir stoppa okkur heldur klæðum okkur í viðeigandi fatnað og njótum þess sem útiveran gefur okkur. Hún léttir skap, minnkar kvíða og streitu, róar taugakerfið, styrkir ónæmiskerfið, bætir einbeitingu og athygli – listinn er nær endalaus! Auk þess að gefa okkur að sjálfsögðu endalausa möguleika á hreyfingu. Til hamingju með þennan fallega dag – njótum hans í útiveru!
Sigurvegarar í Umhverfisfréttafólki 2025
Uppskeruhátíð í verkefninu Umhverfisfréttafólk fór fram fimmtudaginn 10.apríl. Á hverju ári berast fjölmörg vönduð og fjölbreytt verkefni í keppnina frá skólum víðsvegar á landinu. Í ár voru það m.a. spil, myndbönd, hlaðvarp, fréttaskýringar, smásögur, dagatal, ljóð, listaverk, tímarit vöruhönnun og ljósmyndir.
Alviðra – athvarf í náttúrunni fyrir nemendur og kennara
Vorið nálgast og Alviðra opnar faðm sinn fyrir nemendur og kennara frá 19. maí til 6. júní, og svo aftur síðsumars frá 25. ágúst til 30. september. Námskeið fyrir kennara og aðra áhugasama verður haldið föstudaginn 25. apríl
Nægjusamur nóvember
Í nóvember ætlum við að tileinka okkur nægjusemi og hvetjum sem flest að vera með! Vikulega sendum við Grænánaskólum verkefni!
Dagur íslenskrar náttúru
Senn líður að Degi íslenskrar náttúru sem haldinn er hátíðlegur árlega þann 16.september. Skólar eru hvattir til að gera deginum hátt undir höfði og nýta sér verkefni í tengslum við daginn sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Grænfáninn, Landvernd og Miðstöð útivistar og útináms hjá Reykjavíkurborg hafa lagt til.
Námskeið í Alviðru
Kennarar og annað skólafólk sem vill kynna sér aðstöðuna er velkomið að Alviðru föstudaginn 30. ágúst nk. Á staðnum verða kennarar með reynslu af því að taka börnin út í náttúruna til kennslu, auk Grænfánateymis. Gert er ráð fyrir að námskeiðið standi frá kl. 11:00 til kl. 15:00.
Alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni 22.maí
Fögnum lífbreytileikanum! Grænfáninn og Landvernd hvetja kennara og nemendur að vinna verkefni tengd lífbreytileika í tilefni dagsins og deila á sínum miðlum.