Search
Close this search box.

Menntun til sjálfbærni og Grænfáninn

Menntun til sjálfbærni og Grænfáninn

UNESCO leggur áherslu á það að nálgast menntun til sjálfbærni á þann hátt að allur skólinn sé þátttakandi og þurfi að gangast undir breytingar í takt við markmið menntunar til sjálfbærni (e. whole-institution approach). Skólinn og starfsmenn hans þurfa að vera góð fyrirmynd og fara eftir gildum og viðmiðum sjálfbærrar þróunar og að gefa nemendum möguleika og tækifæri til þess að koma hugmyndum sínum í framkvæmd og vera virkir.

Sameinuðu þjóðirnar hafa nefnt Grænfánaverkefnið sem helsta innleiðingartæki fyrir menntun til sjálfbærni í heiminum.

Grænfáninn er útbreiddasta viðurkenning sinnar tegundar í heiminum og er haldið úti af samtökunum Foundation for Environmental Education (FEE). Víðs vegar um heiminn taka um 59 þúsund skólar í 74 löndum þátt í verkefninu og á Íslandi um 200 skólar á öllum skólastigum, frá leikskóla og upp í háskóla en einnig vinnuskólar og félagsmiðstöðvar. 

Grænfáninn er dreginn að húni í þeim skólum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum og er tákn um árangursríka menntun til sjálfbærni og umhverfisstefnu í skólum. Skólar í verkefninu þurfa að ganga í gegnum sjö skref í átt að aukinni umhverfisvitund og sjálfbærni. Sérfræðingar Grænfánans veita bæði aðstoð og eftirlit með starfseminni og miðlar af mikilli þekkingu og reynslu um verkefni, kennsluefni og kennsluaðferðir til þátttökuskóla. Grænfánaverkefnið veitir þar með svör við óskum kennara um markvissa og faglega aðstoð, stuðning, hvatningu, verkefni og kennsluefni og er þar með mikilvæg leið fyrir skóla til að vinna eftir skilgreiningum aðalnámskrár.

Grænfánaverkefnið auðveldar skólum heildstæða innleiðingu á menntun til sjálfbærni

Grænfánaverkefnið byggir á hugmyndafræði menntunar til sjálfbærni

Nemandinn er í brennidepli þannig að aðferðirnar eru mjög þátttökumiðaðar, fjölbreyttar og þverfaglegar. Þetta er valdeflandi nálgun og nemendur eiga að fást við raunverulegar áskoranir sem eru bæði tengdar við þeirra eigið líf, skólann og síðan nærsamfélagið. Jafnframt eru málin tengd við hnattrænar áskoranir og hnattræn vitund er þjálfuð. Staða mála er metin, gildi og viðhorf eru skoðuð með gagnrýninni hugsun og nemendur eru hvattir til að hugsa út fyrir rammann á skapandi hátt og hafa áhrif á breytingar.

Fræðast meira

Í 3.kafla í handbókinni Menntun til sjálfbærni er fjallað ítarlega um tengingu menntunar til sjáfbærni og Grænfánans. 

Hugtök

Við vinnum með ýmis hugtök í grænfánavinnunni, sem tengjast loftslagsmálum og náttúruvernd. Hugtök eru útskýrð með stutta svarinu og langa svarinu.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2024 Vefsíðugerð: webdew.is