Hugsanaæfing þar sem nemendur ferðast til ársins 2050, ímynda sér lausnir á loftslagsvánni, hugsa aftur á bak með bakrýni, efla von, sköpun og tengsl við náttúruna og hugleiða ábyrgð mannsins.
Markmið:
Að hugleiða skapandi leiðir sem gætu hjálpað loftslaginu
Að hugleiða um samtakamátt mannanna
Að sjá fyrir sér framtíð þar sem loftslagskvíði er fortíðarvandi.
Framkvæmd
Árið er 2050 og við sitjum við eldhúsborðið og við látum hugann reika um liðna tíð. Nú ríkir friður í heiminum og það er liðin tíð að mannfólkið nýti auðlindir jarðar á yfirdrætti. Nú höfum við náð tökum á loftslagsbreytingum og það var nú ýmislegt sem þurfti að gerast svo það tækist. Það gerðist sérstaklega mikið þarna á milli 2021 og 2030. Hvernig fórum við að?
Aðferð
Sjá hugsanaæfingu Gunnhildar Fríðu í loftslagsverkfallinu.
Nemendur geta skrifað niður nokkrar hugleiðingar á blað og gert hugarkort í sameiningu
Um aðferðina: Bakrýni (Backcasting) er aðferð til að hanna framtíðina. Byrjað er að lýsa hvernig hin “fullkomna” framtíð – eða æskilega staða sé og svo er unnið aftur á bak og kennsl borin á þau verkefni, aðgerðir og aðferðir sem gerðu það að verkum að framtíðin varð að veruleika. Leiðarspurningar bakrýni eru; „Ef við viljum ná ákveðnu markmiði, hvaða aðgerða þarf að grípa til að komast þangað?“ og „Hvað þarf að gera til þess að þessi framtíð verið að veruleika og tengist nútíðinni?“.