draumaframtíð

Draumaframtíðin mín

Í þessu verkefni láta nemendur sig dreyma um draumaframtíð fyrir okkur og fyrir jörðina. Verkefni sem byggir á bakrýni sem er er gagnleg leið til að takast á við flókin viðfangsefni líkt og loftslagsbreytingar og eru valdeflandi fyrir nemendur. 

Markmið:

Nemendur láti sig dreyma um bestu mögulegu framtíð fyrir sig og jörðina

Nemendur beiti heildrænni hugsun og taki tillit til margra þátta

Nemendur tengi saman gott líf fyrir sig við gott líf fyrir aðra

Framkvæmd

Kennarinn: Kennarinn kynnir verkefnið með spurningu til umhugsunar eða umræðu ef tíminn leyfir: Er bara ein framtíð? Ef ekki, þá hvað eru margar mögulegar framtíðir? Hvað finnst ykkur um framtíðina? hafið þið val um margar framtíðir? getið þið haft áhrif á framtíðina?

Í þessu verkefni ætlum við að láta okkur dreyma um draumaframtíðir fyrir okkur og fyrir jörðina.

Byrjum á að hugsa um framtíðirnar og dreyma um hvað okkur langar í. Þá skoðum við spurningarnar um þá þætti sem við þurfum að huga að líka. Síðan búum við til mynd, sögu, upptöku, eða eitthvað annað, þar sem við sýnum drauma okkar fyrir okkur og fyrir allt sem spurt er um í verkefninu.

Geymum draumana og endurskoðum þá síðar. Í lok árs, á næsta ári, eða jafnvel í lok skólagöngunnar.

Ef tími leyfir er tilvalið að kynna fyrir hinum í bekknum

Nemendur: Ímyndaðu þér að það sé sólríkur sumardagur árið 2040 og þú býrð á draumastað. Gefðu þér nokkrar mínútur til að láta þig dreyma um þína draumaframtíð.

Skrifaðu niður svör við spurningunum hér fyrir neðan.

  • Hvernig er draumastaðurinn þinn? Hvernig er húsið sem þú býrð í? Hvað er í kringum húsið?
  • Hvernig er lífið þitt? Hjá hverjum býrðu? Við hvað vinnur þú? Hvað gerir þú í þínum frítíma?
  • Hvernig hafa hinir í nærsamfélaginu það? Eins og þú eða öðruvísi?
  • Hvaðan kemur maturinn sem þið borðið? Fötin sem þið eruð í? Dótið sem þið eigið? Hvernig fer fólk um?
  • Hvernig er náttúran þar sem þú býrð? Loftið, vatnið, moldin, gróðurinn? Hvaða dýr búa þar–fuglar, spendýr, skriðdýr, fiskar, froskdýr, pöddur?

Búðu til mynd eða sögu eða upptöku eða eitthvað annað? af draumaframtíðinni þinni. Hér má til dæmis notast við skapandi skil.

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is