Fræsöfnun

Fræsöfnun og sáning birkifræja

Nemendur taka virkan þátt í vistheimt með því að kortleggja birkitré, safna og sá fræjum, fylgjast með vexti og öðlast skilning á mikilvægi birkiskóga fyrir jarðveg, líffræðilegan fjölbreytileika og loftslagsaðgerðir.

Markmið:

Að nemendur kynnist vistheimt í verki með söfnun, sáningu og eftirliti með birkifræjum

Að nemendur skilji hlutverk birkiskóga í jarðvegsvernd, líffræðilegri fjölbreytni og loftslagsaðgerðum

Að nemendur þjálfist í athugunum, skráningu og langtímahugsun í tengslum við náttúruna

Að nemendur upplifi ábyrgð og þátttöku í endurheimt náttúrulegra gæða í nærumhverfi sínu

Framkvæmd

Þetta verkefni tekur eins mikinn tíma og áhugi er fyrir og veður leyfir. Fræsöfnunin sjálf getur staðið yfir frá því fræin eru orðin þroskuð snemma á haustin og þangað til þau fara að detta af. Þetta er mislangur tími eftir árum og einnig er fræframleiðsla misjafnlega mikil milli ára. Hægt er að gera verkefnið einu sinni eða endurtaka árlega.

Nemendur horfa á þetta myndband um birki

Nemendur finna birkitré í nágrenni skólans. Það má athuga með garða hjá fólki en nauðsynlegt að spyrja um leyfi fyrst. Í samráði við skólann, sveitarfélagið og jafnvel Landgræðsluna eða Skógræktina, finnið svæði í nágrenni skólans sem gæti hentað fyrir sáningu á birkifræjum og tilraunir. Munið að birkitré geta orðið ansi há og þau þurfa pláss. Þið getið skoðað www.birkiskogur.is til að finna upplýsingar, leiðbeiningar og myndbönd um fræsöfnun og dreifingu.

  1. Kortlagning og gagnasöfnun
    Þið skulið kortleggja heppileg birkitré og fylgjast með fræframleiðslunni í nágrenni skólans í byrjun skólaárs að hausti. Fræreklarnir eru mjög áberandi og auðvelt að ná þeim af þegar fræin eru þroskuð.
  2. Sáning
    Sáið fræjum annað hvort strax eða þurrkið og geymið á köldum stað fram á vor og sáið þá. Merkið vel svæðið sem búið er að sá í og takið GPS hnit og merkið inn á kort. Þá er auðvelt að fylgjast með hvar er búið að sá og hvar má sá á næsta ári.
  3. Eftirlit
    Fylgist árlega með vexti plantnanna og stækkið sáningarsvæðið jafnt og þétt.
  4. Aukaverkefni i skólastofu.
    Skiptið ykkur í 3-4 manna hópa og gerið hópverkefni sem tengjast íslenskum birkiskógum. Hér koma nokkrar hugmyndir að viðfangsefnum og hver hópur kynnir niðurstöður sínar fyrir hinum í bekknum. Skila má verkefninu sem glærusýningu, myndbandi, viðtölum eða á öðru formi sem þið getið sýnt samnemendum ykkar.
    • Hvernig voru birkiskógar Íslands í augum víkinganna?
    • Hvað varð til þess að birkiskógar minnkuðu í gegnum árin?
    • Hvaða lífverur lifa í birkiskógum?
    • Af hverju þolir birkiskógur eldgos betur en graslendi? Skoðið Hekluskógaverkefnið. 
    • Hvar eru stærstu birkiskógar á Íslandi?
    • Hvað er kúalubbi og hvernig tengist hann birki?
    • Geta tré talað saman? Horfið á myndband frá National Geographic How trees secretly talk to each other in the forest.

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is