Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Markmið:

Að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi

Að auka umhverfisvitund nemenda og þjálfa þá í að afla gagna og vinna úr upplýsingum

Framkvæmd

Nemendur viða að sér efni sem tengist því málefni sem þeir völdu sér og vinna að mestu sjálfstætt undir handleiðslu kennara. Taka viðtöl, skrifa greinar upp úr heimildum, skrifa greinar/pistla skrásetja og ákveða hvernig útlit blaðsins verður.

Best væri vinna blaðið þannig að hægt væri að dreifa því rafrænt 

Til nemenda:

Í þessu verkefni munuð þið vinna saman að því að búa til rafrænt fréttablað sem fjallar um umhverfismál. Markmiðið er að fræða, vekja áhuga og auka vitund um stöðu umhverfismála bæði hjá ykkur sjálfum og öðrum.

Þið munuð afla upplýsinga, taka viðtöl, skrifa greinar og ákveða hvernig blaðið lítur út. Verkefnið krefst samvinnu, sjálfstæðra vinnubragða og gagnrýninnar hugsunar.

1. Val á viðfangsefni

Kennari og nemendur setja saman lista yfir málefni sem fjallað verður um í fréttablaðinu. Hver nemandi eða hópur velur eitt málefni til að vinna með.

Dæmi um umhverfismál og hugtök sem hægt er að skrifa um:

  • Loftslagsbreytingar
  • Sjálfbær þróun
  • Náttúruauðlindir
  • Endurnýjanleg og óendurnýjanleg orka
  • Mengun
  • Plast og plastmengun
  • Úrgangur, flokkun og endurvinnsla
  • Neysla og ofneysla
  • Kolefnisspor
  • Líffræðileg fjölbreytni
  • Náttúruvernd á Íslandi
  • Hvað getur einstaklingurinn gert?

2. Upplýsingaöflun

Nemendur:

  • afla sér upplýsinga úr áreiðanlegum heimildum (bækur, greinar, vefsíður)
  • taka viðtöl (t.d. við kennara, foreldra, sérfræðinga eða aðra sem hafa skoðanir eða reynslu)
  • skrá heimildir á einfaldan og skýran hátt

3. Skrif og úrvinnsla

Nemendur:

  • skrifa fréttir, greinar, pistla eða viðtöl
  • vinna texta upp úr heimildum í eigin orðum
  • huga að skýru máli og að efnið sé skiljanlegt fyrir lesendur

4. Útlit og framsetning

Nemendur:

  • ákveða útlit fréttablaðsins
  • Huga að fyrirsögnum, myndum, uppsetningu og læsileika
  • setja fréttablaðið upp þannig að hægt sé að dreifa því rafrænt (t.d. PDF, vefsíða eða kynning)

Afrakstur

  • Fullbúið rafrænt fréttablað um umhverfismál
  • Blaðið skal vera fræðandi, skýrt og aðgengilegt
  • Hægt að deila með skólasamfélaginu eða foreldrum

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is