náttúra, lækur tré og steinar

Grænabyggð

Nemendur taka þátt í hlutverkaleik þar sem þeir rökræða um skipulagsákvörðun í sveitarfélaginu Grænabyggð. Nemendur læra að skilja ólík sjónarmið og þjálfa lýðræðislega umræðu.

Markmið:

Að skilja og takast á við ólík sjónarmið

Að þjálfa virka hlustun, rökræðu og samvinnu

Framkvæmd

Aðstæður

Þið eruð íbúar í sveitarfélaginu Grænubyggð. Skóli sveitarfélagsins stendur í Grænadal, fallegum dal með votlendi, birkiskógi, á, hverum og ríkri náttúru. Skólastarfið hefur þróast í nánum tengslum við þetta umhverfi. Í nýju aðalskipulagi er lagt til að flytja skólann úr dalnum inn í byggðina þar sem lítið er um náttúru. Í staðinn á að byggja ferðamannasvæði með hótelum og heilsuböðum í Grænadal. Vegna þess að lýðræði er mikilvægt í Grænubyggð er boðað til fundar þar sem málið er rætt.

  1. Nemendum skipt í hópa, amk. sex nemendur í hverjum hóp svo að öll hlutverk séu hluti af umræðunni. Hægt að hafa tvo með sem hlutverk ef þess þarf
  2. Draga í hlutverk, hlutverkin eru:
    • Nemandi
    • Kennari
    • Skólastjóri
    • Fulltrúi sveitarstjórnar
    • Ferðaþjónustuaðili
    • Náttúruverndarsinni
  3. Setja sig í hlutverk, þið eruð öll hluti af samfélaginu. Nú skuluð þið setja ykkur í þau hlutverk sem ykkur hefur verið úthlutað.
    • Veltu fyrir þér hlutverki þínu og ímyndaðu þér hvernig manneskja þú ert og hvað skiptir þig máli.
    • Lýstu persónunni í nokkrum orðum.
    • Hvaða skoðun hefur þú á málinu? (Það þarf ekki að vera þín eigin skoðun heldur setur þú þig í hlutverk).​
  4. Umræður sem hópur. Ræðið í hlutverkum ákvörðun sveitarfélagsins. Passið að allir fái að segja sína skoðun, beitið virkri hlustun. Rökræðið og komið ykkur saman um niðurstöður
  5. Fundargerð, setjið saman nokkra punkta þar sem fram kemur sameiginleg niðurstaða frá ykkar hóp.
  6. Umræður sem bekkur, kynnið niðurstöðu ykkar fyrir bekknum

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is