Í verkefninu taka nemendur sig til, hafa áhrif og grípa til aðgerða. Komið þið auga á eitthvað vandamál í ykkar nærumhverfi sem þyrfti að leysa?
Markmið:
Nemendur öðlist færni, getu og þekkingu á því hvernig hægt sé að hafa áhrif
Nemendur skoði lausnir við loftslagsvandanum og tengi þær við fyrirtæki og stjórnvöld
Nemendur veki athygli á loftslagsbreytingum og þeim tækifærum sem eru til þess að sporna gegn þeim
Nemendur þjálfist í að taka eigin ákvarðanir og vinni í heimabyggð
Framkvæmd
Tilvalið er að vinna verkefnin: Kryfjum vandamálið til mergjar, Bakrýni eða Draumaframtíðin mín áður en þetta verkefni er unnið, þó það sé ekki skylda.
Þetta verkefnið hópaverkefni og er hæfilega stærð hópa 3-4 nemendur.
Í þessu verkefni eigið þið að hafa áhrif í alvöru og grípa til aðgerða. Komið þið auga á eitthvað vandamál í ykkar nærumhverfi sem þyrfti að leysa? Hvernig gæti það stutt við náttúruna og umhverfið á Jörðinni?
Verkefnið er að hafa raunveruleg áhrif! Þið getið t.d. breytt háttum ykkar, breytt einhverju heima hjá ykkur, í skólanum eða annars staðar eða reynt að hafa áhrif á fyrirtæki, stofnanir, stjórnmálafólk og annað fólk sem ræður.
Verkefnið er að hafa raunveruleg áhrif! Þið getið t.d. breytt háttum ykkar, breytt einhverju heima hjá ykkur, í skólanum eða annars staðar eða reynt að hafa áhrif á fyrirtæki, stofnanir, stjórnmálafólk og annað fólk sem ræður. Hér tala verkin sjálf.
1. Viðfangsefni og leiðarspurning:
- Hvað getum við gert til að hjálpa loftslaginu?
- Hvernig getum við beitt áhrifum okkar til að hægja á loftslagsbreytingum?
- Hverju getum við breytt hjá okkur sjálfum?
- Hvernig getum við haft áhrif á fyrirtæki eða þau sem raða?
- Getur þú valið einn afmarkaðan hlut sem þú vilt breyta eða hafa áhrif á? Hvað finnst þér mikilvægt?
2. Tilgáta og hugmyndir
- Hvernig ætlið þið að hafa áhrif?
- Hverjum er verkefnið beint að?
- Hvernig ætlið þið að miðla upplýsingum? Hver eru skilaboðin ykkar? Hverju viljið þið koma á framfæri?
- Aflið ykkur upplýsinga um efnið, t.d. með því að leita á vefnum, lesa bækur, safna gögnum, fara í vettvangsferð, spyrja fólk sem þekkir vel til o.s.frv.
Berið hugmyndir ykkar undir kennarann.
Gott að hafa í huga:
- Hverjum er verkefnið beint að?
Á að ná til samnemenda? allra í skólanum, fjölskyldunni, vina, allra í hverfinu, þorpinu eða landinu? Ætlið þið að reyna að hafa áhrif á verslanir? Framleiðendur? Ráðamenn? - Miðlun upplýsinga/ skapandi skil
Hvernig ætlið þið að segja frá og ná til fólks? Hvar? Hver á að fá skilaboðin?
3. Efni og áhöld
Hvað þurfið þið að nota í verkefninu? Getið þið fundið eitthvað heima? eða í endurvinnslugámnum? Mikilvægt er að kaupa „ekki alltaf eitthvað nýtt” og skapa ekki meiri mengun með verkefninu.
Skiptið verkum. Hver í hópnum á að gera hvað?
4. Framkvæmd/ gagnasöfnun
Nemendur ákveða með hvaða hætti þeir útfæra afurð verkefnisins, þeir geta gert ljósmynd, slagorð, ljóð, myndband, leikverk, tónlist, gjörning, auglýsingu, skrifað bréf eða grein í blað eða hvað sem þeim dettur í hug.
Sama hvað þið gerið, þá er lykilatriði að deila því með öðrum, t.d. á samfélagsmiðlum skólans, hengja upp veggspjöld í kjörbúðinni, hafa samband við KrakkaRúv, RúvNúll, tala við fjölskyldu og ættingja o.s.frv. Að auki er verkefnið kynnt á lokakynningu fyrir bekkinn.
- Hvernig ætlið þið að hafa áhrif?
- Hverjum er verkefnið beint að?
- Hvernig ætlið þið að miðla upplýsingum?
5. Kynning
Verkefnin eru kynnt í munnlegri kynningu fyrir bekkinn/ samnemendur/ foreldra.
Hvernig hyggist þið kynna verkefnið á lokakynningu? Athugið að mikilvægt er að vanda kynninguna og grípa athygli áhorfenda. Hæfilegur tími kynningar er 5 mínútur. Góð ráð um munnlegar kynningar.
6. Ályktanir og niðurstöður
- Hvernig tókst til?
- Náðuð þið að hafa áhrif? Hvernig?
Á verkefnið heima í keppninni Ungt umhverfisfréttafólk? Ef svo er sendu það inn og þú gætir unnið til verðlauna