Verkefni þar sem nemendur kynnast Heimsmarkmiðunum, eflir gagnrýna hugsun og ritun og þjálfar hæfni í að greina samfélagslegar áskoranir og miðla lausnum.
Markmið:
Að nemendur kynnist Heimsmarkmiðunum og mikilvægi þeirra.
Að þjálfa gagnrýna hugsun og ritun.
Að nemendur geti metið samfélagslegar áskoranir og lagt til lausnir.
Að efla hæfni í kynningu og miðlun.
Framkvæmd
- Horfið á myndbandið og svarið spurningum:
- Hvaða þrjú grunnskilyrði þarf maðurinn til þess að lifa af?
- Hvaða tvær meginhindranir eru í veginum til þess að við getum lifað sjálfbæru lífi á jörðinni? Lýstu þessum hindrunum.
- Hvað eru heimsmarkmiðin?
- Hvaða stofnun gaf út markmiðin?
- Hvenær þurfum við í síðasta lagi að ná markmiðunum?
- Veldu eitt af 17 heimsmarkmiðum til að rannsaka og búið til glærukynningu eða myndband þar sem eftifarandi atriði koma fram:
- Um hvað fjallar markmiðið?
- Segðu frá þremur undirmarkmiðum
- Hvernig gengur okkur að ná markmiðinu?
- Hvernig getum við unnið betur að markmiðinu, hvað geta einstaklingar gert?
- Hvernig tengist markmiðið Íslandi?
- Þekkir þú fyrirtæki, stofnanir eða hópa sem eru að vinna að markmiðinu?