Hjálpum fyrirtækjum og stjórnvöldum

Hvernig standa fyrirtæki og stofnanir og stjórnvöld sig þegar kemur að umhverfismálum? Nemendur fara í heimsókn í fyrirtæki eða stofnanir í nærumhverfinu og bjóða upp á umhverfismat þar sem nemendur leggja gátlista fyrir fulltrúa fyrirtækjanna/stofnana og koma svo með hugmyndir að úrbótum.

Aldur: Leikskóli, grunnskóli, framhaldsskóli, háskóli

Tími: 4 kennslustundir. 1 til undirbúnings, ca. 2 fyrir heimsókn (fer eftir vegalengdum) og 1 til úrvinnslu.

Markmið: 

Að nemendur kynnist fyrirtækjum og stofnunum í sínu nærumhverfi.

Að nemendur miðli upplýsingum um umhverfismál til aðila utan skólans. 

Að nemendur bendi fulltrúum fyrirtækja og stjórnvalda á þeirra ábyrgð þegar kemur að áskorunum sem tengjast umhverfismálum.

Efni/áhöld: Gátlistar. Hægt er að notast við gátlista hvers skólastigs, skoðað gátlistann og aðlagað að heimsókninni.

Framkvæmd
Skipuleggja má heimsóknir þar sem nemendur framkvæma umhverfismat með fulltrúum fyrirtækja eða sveitarstjórna. Komast má í samband við fyrirtæki, stofnanir eða stjórnvöld (t.d. sveitarstjórn) með aðstoð nemenda, kennara og fjölskyldna. Nemendur í nokkrum Grænfánaskólum hafa gert þetta með góðum árangri og hafa m.a. notast við gátlista Grænfánans.

Undirbúningur í skólanum

  • Kennari kynnir verkefnið og tilgang þess.
  • Nemendur fara í hópa og ákveða hvaða fyrirtæki eða stofnun á að heimsækja.
  • Skoða saman meðfylgjandi gátlista og ræða:
    • Hvað viljum við skoða sérstaklega?
    • Vantar spurningar á listann?
    • Hver spyr hvað?
  • Hóparnir útbúa stutt og kurteis kynningarorð fyrir heimsóknina.

Í heimsókn

  • Nemendur hitta fulltrúa fyrirtækisins eða stofnunarinnar og kynna tilgang heimsóknarinnar.
  • Hópar vinna með gátlistana, kanna aðstæður og spyrja spurninga.
  • Nemendur eru hvattir til að:
    • Skrá niður athugasemdir
    • Nefna jákvæða hluti
    • Finna tækifæri til úrbóta
    • Vera kurteis
  • Ef leyfi fæst má taka myndir til heimildar.

Eftir heimsókn

Nemendur vinna úr gögnum og setja saman:

  • 3–5 tillögur að raunhæfum úrbótum
  • Stutta samantekt um stöðu fyrirtækisins/stofnunarinnar
  • Yfirlit yfir styrkleika og tækifæri
  • Skýrslu eða stutta kynningu á heimsókninni og niðurstöðum

Tillögurnar eru svo sendar:

  • Til viðkomandi fyrirtækis/stofnunar
  • Mögulega til sveitarstjórnar
  • Miðlað í skólanum eða til fjölmiðla

Hægt er að fylgja málinu eftir nokkrum mánuðum síðar og kanna hvort breytingar hafi orðið Verkefnið fylgir námsefninu Hreint haf – plast á norðurslóðum eftir Margréti Hugadóttur sem kom út haustið 2021 á vegum Landverndar og Menntamálastofnunar.

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is