Hlutverkaleikur - Stígðu fram

Hlutverkaleikur – Stígðu fram

Stígðu fram er hlutverkaleikur um mannréttindi, loftslagsréttlæti og umhverfismál. Nemendur kanna mun á stöðu fólks eftir búsetu, kyni, stétt eða áhrifum loftslagsbreytinga.

Markmið:

Að setja sig í spor annara og átta sig á mismunandi tækifærum og hindrunum hjá fólki í heiminum

Framkvæmd

Hlutverkaspjöldin eru afhent af handahófi, eitt á hvern nemanda. Nemendur fá tíma til að setja sig inn í sitt hlutverk og hugleiða hvernig æskan var og hvernig daglega lífið er núna, hvernig lífsvenjur þeirrar hlutverk hefur og hvað þeim finnst spennandi og hvað þau hræðist. Nemendur mega ekki segja öðrum frá hlutverki sínu strax.

Þegar nemendur hafa kynnt sér hlutverk sín raða þeir sér upp hlið við hlið í beina röð. Lesnar eru upp nokkrir fullyrðingar.

Í hvert sinn sem nemendur geta svarað setningu með „já“ mega þeir taka skref áfram.

Annars verða þeir að vera þar sem þeir eru og mega ekki færa sig.

Í lokin er athugað hver lokastaða hvers hlutverks er, hver nemandi kynnir sitt hlutverk og síðan fara fram umræður um upplifun nemenda og skilaboð þessa leiks.

Hlutverk og spurningar

Ítarefni

Hvað er loftslagsréttlæti? Landvernd

Hvernig bitna loftslagsbreytingar á konum? UN Women Íslandi.  

Worldmapper 

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is