tré á uppþornuðum jarðveg

Hnattræn hlýnun

Nemendur greina muninn á hnattrænni hlýnun og loftslagsbreytingum. Kynna sér orsakir og afleiðingar og miðla þekkingu sinni á fræðilegan og skapandi hátt.

Markmið:

Greina muninn á hnattrænni hlýnun og loftslagsbreytingum.
Þekkja helstu gróðurhúsalofttegundir
.

Framkvæmd:

Lesið: Hugtakið hnattræn hlýnun merkir að meðalhiti á jörðinni er að hækka vegna aukinna gróðurhúsaáhrifa. Hugtakið loftslagsbreytingar nær yfir allar breytingar á loftslagi, hitabreytingar, úrkomu, uppgufun, bráðnun jökla, hækkandi sjávarstöðu auk allra öfga í veðuri eins og flóð, þurrka, storma og fellibylja.

Horfið: á þetta myndband til upplýsingar

Verkefnavinna: Veljið eitt umfjöllunarefni og miðlið því með myndbandi, veggspjaldi eða glærusýningu

  • Útskýrið hugtökin hnattræn hlýnun og loftslagsbreytingar og hver er munurinn? Hvað er talið orsaka hnattræna hlýnun?
  • Kynntu þér Parísarsamkomulagið, hverjir tóku þátt í því, um hvað fjallar það og hvert er markmið samkomulagsins?
  • Hversu mikið hefur meðalhiti á Jörðinni hækkað? Veldu fimm lönd og segðu hversu mikið hitastigið hefur hækkað og hversu mikil hækkun gæti orðið 2100. Á hvaða svæðum hefur hækkunin verið mest? Sjá upplýsingar hér. Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar á löndin?
  • Gerið listaverk þar sem hnattræn hlýnun er táknuð með litum, formum, myndlíkingu. Hafið texta með þar sem hugtökin loftslagsbreytingar og hnattræn hlýnun eru útskýrð.
  • Skrifaðu sögu sem gerist framtíðinni, hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar á samfélagið? Er búið að finna lausn, höfum við breytt lífsháttum okkar?

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is