Tíska er okkur afar hugleikinn, tísku er gjarnan skipt upp í tvo flokka hraðtíska e. fast fashion og hæg tíska e. slow fashion. En hvað þýðir þetta? Nemendur kynna sér málið og fræða aðra.
Markmið:
Að nemendur fræðist um framleiðlsuferli og umhverfisáhrif fataiðnaðarins
Að nemendur kafi dýpra og leiti upplýsinga um dökkar hliðar fataiðnaðarins
Framkvæmd
Aflið ykkur upplýsinga á netinu um hraða og hæga tísku og svarið eftirfarandi spurningum t.d má hlusta hér: https://www.ruv.is/frett/krafan-um-odyran-fatnad
- Hver er munurinn á þessu tvennu?
- Hvað einkennir hraða tísku?
- Hvað einkennir hæga tísku?
- Hvort telur þú að hröð eða hæg tíska hafi betri áhrif á umhverfið? Getur þú nefnt þau umhverfisáhrif sem hröð tíska hefur á umhverfið?
- Hvort telur þú að hraða eða hæg tíska sé betri fyrir þann/þá aðila sem á tískufatamerkið? Að hvaða leiti?
- Hvort telur þú að hraða eða hæg tíska sé betri fyrir þá aðila sem sjá um að sauma fötin? Að hvaða leiti?
- Getur þú fundið fatamerki sem myndu flokkast undir hraða tísku
- Getur þú fundið fatamerki sem myndu flokkast undir hæga tísku
- Hvað geta einstaklingar gert til þess að stuðla að minni umhverfisáhrifum frá fataiðnaðinum?
- Hvernig geta einstaklingar orðið meðvitaðri neytendur á tísku?
Notið þær upplýsingar sem þið fenguð með því að svara þessum spurningum hér að ofan til þess að búa veggspjald (í tölvu eða á karton) til þess að upplýsa aðra í nærumhverfinu áhrif hraðtísku á umhverfi og fólk.