Hringrás vatns

Verkefni sem kynnir fyrir börnum birtingarmyndir vatns og hringrás þess. Börnin læra hugtök ásamt því að gera athuganir.

Aldur: leikskólastig

Markmið:
Kynna fyrir börnum á leikskólaaldri birtingarmyndir vatns og hringrás þess.

Afhverju vatnið breytir um form og í framhaldi af því afhverju það breytir um form í náttúrunni eftir árstíðum (áhrif hitastigs).

Framkvæmd:

Leggja inn orð og hugtök tengd vatni svo sem; bráðnun/bráðna – vatn – klaki – snjór – krap – gufa – uppgufun – vatnsyfirborð – hitastig – frostmark – frost – fast form – fljótandi form – o.s.frv. Hér má nálgast stuðningefni fyrir kennara

Tilraun:

1. skref – Snjór og klaki sóttir út og sett inn í sitthvora skálina. Forhugmyndir barnanna ræddar um það hvað gerist þegar snjór og klaki er settir inn og afhverju. Hér er kjörið tækifæri til að fá fram líflegar umræður um hvaðeina er tengist vatni og leggja inn orð og efla skilning á hringrás vatns.

2. skref (daginn eftir): Bráðnunin skoðuð (snjórinn ætti að vera orðin að vatni en klakinn ekki að fullu). Tilvalið að gera strik á snjóskálina til að merkja hvert vatnsyfirborðið nær og jafnvel að hafa skálarnar þar sem börnin geta fylgst með þeim næstu daga fram. Aftur er hér kjörið tækifæri til umræðna og útskýringa.

3. skref (u.þ.b. 3 dögum eftir 2.skref): Tilraunin skoðuð og rædd (nú ætti að vera vatn í klakaskálinni en ekkert í snjóskálinni). Uppgufun vatnsins út í andrúmloftið útskýrð fyrir börnunum ásamt hringrás vatns í náttúrunni.

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is