Jafningjafræðsla – umhverfismál

Nemendur velta fyrir sér hvað felst í umhverfisvænum lífstíl, kynna sér málið og útbúa námskeið fyrir jafnaldra eða almenning. 

Aldur: unglingastig, framhaldsskóli, háskóli

Tími: 4 kennslustundir

Markmið:

Að nemendur átti sig á hvað felist í því að vera ábyrgur neytandi

Að nemendur fái verkfæri til þess að taka skref í átt að grænum lífstíl

Að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum umhverfisfræðarinnar

Að nemendur átti sig á gagnsemi hringrásarhagkerfisins

Aðferð:

Nemendur setja sig í spor námskeiðshaldara, þeir útbúa fræðslu fyrir almenning um hvernig megi lifa umhverfisvænum lífstíl og minnka þannig vistspor sitt. Fræðslan getur verið í formi hlaðvarps, fyrirlesturs, myndbands eða blaðagreinar.

Þeir afla sér upplýsinga um:

  • Hvað felst í því að vera ábyrgur neytandi
  • Hver eru helstu umhverfismerkin og fyrir hvað standa þau
  • Hvað er það sem hefur áhrif á vistspor einstaklinga og hvernig má minnka vistsporið
  • Hvaða leiðir er hægt að fara til þess að henda minni úrgangi

Verkefnalýsing fyrir nemendur:

Þið fáið það verkefni að útbúa fræðslu fyrir almenning um það hvernig hægt er að stuðla að sjálfbærni í daglegu lífi. Námskeiðið á að nýtast öllum þeim sem vilja taka skref í átt að grænum lífsstíl en vita ekki hvar á að byrja.

Á námskeiðinu/fyrirlestrinum er fjallað um

  • Hugtökin sjálfbærni, vistspor og hringrásarhagkerfi
  • Hvernig er best að haga innkaupum með tilliti til umhverfisins, fræðsla um 2-4 umhverfismerki
  • Hvernig lengja má líftíma ákveðna matvæla
  • Hvaða lausnir eru til að takmarka umbúðir
  • Mismunandi ferðamáta – almenningssamgöngur, einkabíllinn, hjólið. T.d skoða áhrif þeirra á lýðheilsuna
  • Hvernig hægt að lengja líftíma hluta sem við eigum nú þegar?

Höfum áhrif! Nemendur deila verkefninu með öðrum innan skólans og jafnvel í nærumhverfinu. Hægt er að senda myndbönd, hlaðvarp og blaðagreinar á fjölmiðla og jafnvel halda fyrirlestur á sal fyrir starfsfólk, nemendur eða íbúa í nærumhverfi skólans.

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is