Í þessum hlutverkaleik setja nemendur sig í spor mismunandi fólks í heiminum sem hefur ólíka hagsmuni og tækifæri þegar kemur að landnýtingu (landbúnaði, ferðamennsku og fleira). Út frá þessum hlutverkum þurfa þeir að reyna að komast að sameiginlegri niðurstöðu um ákveðinn ágreining með sjálfbæra landnýtingu að leiðarljósi.
Markmið:
Að nemendur geti aflað upplýsinga og beitt gagnrýnni hugsun til að skilja jarðveg, landnýtingu og hnattrænar áskoranir.
Að nemendur skilji afleiðingar jarðvegshnignunar fyrir fólk og samfélög, sérstaklega í fátækari löndum.
Að nemendur geti rökrætt ágreining og ólíka hagsmuni tengda landnýtingu og tengt þá við sjálfbærni og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Að nemendur geti metið eigin ábyrgð og lagt til lausnir varðandi jarðvegsnýtingu
Undirbúningur
Fyrir þetta verkefni er mikilvægt að nemendur hafa áður fengið góðan grunn í fræðslu um jarðveg og landlæsi, hafa lært að þekkja ástand lands og hvað felst í sjálfbærri landnýtingu. Tilvalið er að taka nokkur verkefni úr námsefni Náttúra til framtíðar. Gott er að hafa handbækurnar Vistheimt á gróðursnauðu landi og Að lesa og lækna landiðtil hliðsjónar í undirbúningi fyrir leikinn.
Verkefnið snýst um jarðveg, sem er ein af okkar dýrmætustu auðlindum, og tengingu jarðvegs við okkur sjálf, þá ábyrgð sem við berum, þau áhrif sem við höfum og þær aðgerðir sem við getum farið í til að gera heiminn sjálfbærari og sanngjarnari fyrir alla. „Að undirbúa jarðveginn“ er myndræn samlíking bæði fyrir betri jarðveg og að undirbúa nemendur fyrir það mikilvæga hlutverk að stuðla að sjálfbærri þróun samfélaga.
Framkvæmd
Fyrir nemendur:
- Undirbúningur: Skiptið ykkur í þrjá hópa og hver hópur fær mismunandi aðstæður til að fjalla um. Einn hópur mun fjalla um aðstæður á ákveðnu svæði á Íslandi, annar um aðstæður á ákveðnu svæði í Gana og þriðji hópurinn um aðstæður á ákveðnu svæði á Borneó. Þið fáið í hendur nánari skýringu á aðstæðum á hverjum stað og á mismunandi hlutverkum. Í hverjum hópi eru sex mismunandi hlutverk. Ef það hentar ekki miðað við stærð bekkjar þá er einnig hægt að sleppa einhverju hlutverki, bæta við eða hafa t.d. tvo sem skiptast á að leika sama hlutverk. Það er mjög mikilvægt að þið séuð öll virkir þátttakendur í leiknum. Einnig er möguleiki á því að bæta við fjórða dæminu (t.d. aðstæður í kringum bómullarframleiðslu á Indlandi eða sojaframleiðsla í Brasilíu) eða hafa bara tvo hópa.
- Upplýsingaöflun: Eftir að þið hafið skipt ykkur niður í þessa þrjá hópa og fengið ykkar hlutverk byrjar upplýsingatímabilið. Gangið út frá þeim forsendum sem ykkar persóna stendur fyrir og finnið svo fleiri heimildir sem styðja mál ykkar. Hér er leit að upplýsingum á netinu afar mikilvæg og mikilvægt er að leita að traustum og áreiðanlegum heimildum. Til að þið áttið ykkur betur á náttúrufari í hverju landi getið þið m.a. farið inn á Google-Earth og skoðað svæðin. Einnig gæti verið gagnlegt að taka viðtal við sérfræðing í landgræðslu og leita til viðkomandi héraðsfulltrúa Landgræðslunnar. Aðrir aðilar sem mætti leita til eru m.a. sérfræðingar hjá Landvernd, Umhverfisstofnun og Landbúnaðarháskólanum. Ef fjarlægðin er of mikil er hægt að biðja um viðtal í gegnum síma eða fjarfund.
- Ígrundun og mat: Á meðan þið leitið að upplýsingum og einnig á meðan hlutverkaleikurinn stendur yfir hafið í huga eftirfarandi spurningar og skoðið þær með gagnrýninni hugsun:
- Hlutverkaleikurinn og fullyrðingaaðferð: Hann snýst m.a. um það að gera sér grein fyrir hagsmunaárekstrum við landnýtingu á ákveðnu svæði og ræða þá. Kennarinn ykkar verður í hlutverki fundarstjórans og passar upp á að allir komist að.
- Allir þátttakendur á fundinum halda 2-3 mínútna ræðu þar sem þeir kynna sig og segja frá aðstæðum frá sínu sjónarhorni. Þið þurfið að rökstyðja ykkar mál og setja fram fullyrðingar (sjónarmið) sem eiga við ykkar hlutverk. Dæmi um fullyrðingu er að x (nýtt fyrirtæki) hafi jákvæð/neikvæð áhrif á y (þorpsbúa).
- Þegar einn hópur leikur sinn hlutverkaleik þá hlusta allir nemendur úr öðrum hópum á og fá það hlutverk að finna og skrifa niður aðalfullyrðingar hvers hlutverks.
- Hver þátttakandi spyr a.m.k. tvo aðra þátttakendur spurninga. Allir reyna að setja sig í spor þeirra sem eru með aðra skoðun og sjá hlutina frá öðru sjónarhorni. Er hægt að finna lausn sem flestir eru sáttir við? Reynið að koma að sameiginlega niðurstöðu.
- Lokaorð þátttakenda, 1-2 mínútur
- Samantekt:
- Fundarstjóri tekur við öllum tillögum að fullyrðingum og skrifar þær í einn dálk á töfluna. Svipaðar fullyrðingar eru sameinaðar.
- Þátttakendur fara úr sínum hlutverkum og nú fá allir í bekknum tækifæri til að mynda sína eigin skoðun og koma henni nafnlaust fram á límmiða sem eru settir í línurnar við hlið fullyrðinganna. Ef þú ert er mjög sammála fullyrðingunni skrifar þú ++, ef þú ert að mestu sammála skrifar þú +, ef þú ert með enga skoðun skrifar þú 0, ef þú ert ekki sammála skrifar þú – og ef þú er alls ekki sammála skrifar þú –.
- Þegar allir hafa sett sína límmiða á sinn stað þá stýrir fundarstjóri umræðum um þessar niðurstöður.
- Sýning: Hægt er að ljúka verkefninu með sýningu fyrir skólasamfélagið og gesti utan þess. Nemendur ákveða sjálfir markmið og uppsetningu sýningarinnar. Meginuppistaðan eru veggspjöld, m.a. fullyrðingatafla úr hlutverkaleiknum og röksemdarkort sem sýna núverandi stöðu, framtíðarsýn, ástæður breytinga og aðgerðir.