Nemendur skoða hvernig jólaauglýsingar höfða til okkar og fá okkur til að kaupa hluti fyrir jólin. Þeir sem auglýsa vilja að fólk upplifi að það vanti, þurfi eða langi í eitthvað. Að eitthvað sé ómissandi eða þetta sé rétta gjöfin fyrir þennan og hinn.
Markmið:
Að nemendur skilji hvernig auglýsingar hafa áhrif á það sem við viljum kaupa
Að nemendur læri að þekkja mismunandi aðferðir auglýsinga til að vekja áhuga
Að nemendur geti hugsað gagnrýnið um auglýsingar og rætt áhrif þeirra
Framkvæmd
Auglýsingar eru búnar til til að fá okkur til að vilja kaupa vörur. Þær höfða til mismunandi þarfa okkar. Í auglýsingum um mat og drykk er oft verið að höfða til þess að við þurfum að borða og drekka. Einnig er lögð áhersla á vellíðan og samveru, til dæmis að borða saman með fjölskyldu eða vinum. Sumar auglýsingar sýna hluti sem eiga að láta okkur líða vel, vera ánægð eða skemmta okkur. Aðrar auglýsingar höfða til öryggis, til dæmis með því að sýna að varan sé traust eða að margir noti hana. Þegar auglýst eru þekkt eða dýr vörumerki er stundum verið að sýna að varan geri fólk „sérstakt“ eða vinsælt.
Unnið er í hópum. Nemendur skoða:
- 2–4 blaðaauglýsingar
- 2–3 myndbandsauglýsingar (t.d. jólaauglýsingar)
Ræðið saman og svarið spurningunum hér að neðan.
Spurningar
- Hvað er verið að auglýsa?
- Hvernig er reynt að fá fólk til að vilja kaupa hlutinn?
- Til hvaða þarfa er auglýsingin að höfða (t.d. matur, öryggi, vellíðan, samvera, skemmtun)?
- Hvaða litir eru mest áberandi? Af hverju ætli þeir séu valdir?
- Er munur á jólaauglýsingum og öðrum auglýsingum?
Hóparnir búa til stutta glærukynningu, hópurinn velur 3 auglýsingar og segir frá því:
hvernig hún reynir að hafa áhrif á fólk og hvað auglýsingin sýnir