Nemendur efla fréttalæsi með því að greina nýlegar fréttir um loftslagsmál, draga fram aðalatriði og útskýra lykilhugtök.
Markmið:
Að auka fréttalæsi
Að þjálfast í að finna aðalatriði í texta
Fræðast um umhverfismál
Framkvæmd
- Finndu fjórar fréttir í fjölmiðlum, tveggja ára eða nýrri sem fjalla um loftslagsmál. Ein af fréttunum á að vera jákvæð frétt um loftslagsmál.
- Gerðu útdrátt um hverja frétt 50-100 orð, segðu þitt álit á fréttinni. Láttu hlekk með fréttinni fylgja.
- Finndu fimm orð í fréttunum sem eru flókin og útskýrðu hvað þau þýða.
- Farið í hópa hver og einn velur eina frétt og segir hópnum um hvað fréttin fjallar.