Loftslagsljósmyndir

Nemendur skoða loftslagsljósmyndir af vefsíðunni Climatevisuals, svara spurningum um þær og tengja þær við eigin ljósmynd úr nærumhverfi.

Markmið:

Að nemendur kynnist loftslagsmálum með greiningu á myndum og skilji hvernig þau birtast í raunverulegum aðstæðum um allan heim.

Að nemendur tengi alþjóðleg loftslagsmál við eigið nærumhverfi með eigin ljósmyndun og miðlun.

Framkvæmd

Skoðið vefinn climatevisuals.org
Þar finnið þið safn mynda sem tengjast loftslagsmálum. Myndirnar eru teknar af raunverulegu fólki og viðburðum um allan heim.

  1. Veldu eina mynd í fjórum flokkum
    • Segðu í hvaða flokki myndin er
    • Útskýrðu hvers vegna þú valdir myndirnar
    • Í hvaða landi eru myndirnar teknar?
    • Hvað er að gerast á myndunum?
  2. Taktu ljósmynd í þínu nærumhverfi sem tengist umhverfismálum.
  3. Útbúðu glærusýningu með myndunum frá Climatevisuals, svörum við spurningunum og myndunum sem þú tókst, útskýrðu hvernig þær tengjast loftslagsmálum.

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is