Loftslagsréttlæti

Loftslagsréttlæti – Rökræður

Hlutverkaleikur þar sem nemendur setja sig í spor annarra og ræða um loftslagsréttlæti. Nemendur eiga að átta sig á hversu margbrotin og flókin mál liggja á bakvið hugtakið loftslagsréttlæti. Nemendur eiga í rökræðum með Fiskabúrs-aðferðinni og koma sér síðan saman um aðgerðir sem munu stuðla að loftslagsréttlæti.

Markmið:

Að nemendur átta sig á mismunandi ábyrgð á losun gróðurhúsalofttegunda

Að nemendur skilja að loftslagshamfarir hafa mismikil áhrif á fólk, bæði eftir búsetu og margra annarra þátta og aðstæðna

Að nemendur geti sett sér í spor annarra og efli hæfni til samkenndar

Að nemendur finni saman á lausnaðamiðaðan hátt hvað þarf að gera til þess að stuðla að loftslagsréttlæti

Framkvæmd

Undirbúningur: Nemendur lesa sér til um loftslagsréttlæti hér. Einnig eru skoðuð gögn á https://ourworldindata.org/ um sögulega, uppsafnaða losun gróðurhúsalofttegunda mismunandi landa og um núverandi losun á íbúa í hverju landi.

Hlutverkaleikurinn: Í leiknum eru 6 hlutverk. Nemendum er skipt niður í þessa hópa, nokkrir nemendur eru í hverjum hópi (hægt er að fækka hópum ef það hentar betur nemendafjölda eða öðrum aðstæðum):

  1. Ungmenni úr hópi frumbyggja í Brasílíu sem berjast gegn eyðingu regnskógarins í landinu
  2. Ungmenni úr hópi Pacific climate worriers sem berjast fyrir réttlátum loftslagsaðgerðum
  3. Ungmenni frá Mósambík, Malaví og Madagaskar sem þurfa að neyðaraðstoð að halda eftir að hitabeltislægðin Ana olli gríðarlegu tjóni á heimili þeirrar og ræktarlandi
  4. Ungmenni sem eru fremstir í röð hjá FridaysForFuture, hafa mikinn áhuga á loftslagsmálum, góðan skilning á loftslagsréttlæti og eru mjög virkir í baráttu samtakanna
  5. Ungmenni í íslenskum grunnskóla sem hafa hingað til ekki hugsað mikið um loftslagsréttlæti en eru opin fyrir að læra um það og velta málunum fyrir sér
  6. Ungmenni í íslenskum skóla sem hafa lítinn áhuga á loftslagsmálum og eru ekki tilbúnir til þess að breyta lífsstílnum sínum mikið

Hóparnir ræða stuttlega saman hvar þeir standa í umræðunni um loftslagsréttlæti.

Síðan byrjar hlutverkaleikurinn með fiskibúrs-aðferðinni.

8 stólum raðað í hring í miðju stofuna. Hver hópur velur sér einn talsmann sem tekur sæti í þessum hring. Fundarstjórinn (kennarinn eða eftir aðstæðum einn nemandi) tekur sæti á einum stól og einn stóll er auður. Hinir nemendur raða sínum stólum í hring í kringum 8 stóla hringinn. Ungmennin eru kominn saman til þess að ræða um loftslagsréttlæti. Byrjað er á því að talsmenn hvers hóps koma í stuttu máli sínum sjónarmiðum á framfæri um stöðu sína og skoðun varðandi loftslagsréttlæti. Síðan byrja umræður sem fundarstjórinn stjórnar með það að markmiði að koma sér í lokin saman um sameiginlegar áherslur í loftslagsaðgerðum sem geta stuðlað að auknu loftslagsréttlæti. Vilji nemandi sem situr í ytra hringnum leggja eitthvað til málsins getur hann sest á auða stólinn í innra hringum og sagt frá sinni skoðun. Þegar hann er búinn með mál sitt fer hann til baka á stólinn sinn í ytri hringnum og aðrir geta komið inn í umræðuna með því að setjast á auða stólinn. Þannig geta orðið líflegar umræður þar sem allir hafa möguleikar á að taka til máls á skipulagðan hátt.

  • 8 stólum raðað í hring í miðju stofuna. Hver hópur velur sér einn talsmann sem tekur sæti í þessum hring.
  • Fundarstjórinn (kennarinn eða eftir aðstæðum einn nemandi) tekur sæti á einum stól og einn stóll er auður.
  • Hinir nemendur raða sínum stólum í hring í kringum 8 stóla hringinn. Ungmennin eru kominn saman til þess að ræða um loftslagsréttlæti. Byrjað er á því að talsmenn hvers hóps koma í stuttu máli sínum sjónarmiðum á framfæri um stöðu sína og skoðun varðandi loftslagsréttlæti.
  • Síðan byrja umræður sem fundarstjórinn stjórnar með það að markmiði að koma sér í lokin saman um sameiginlegar áherslur í loftslagsaðgerðum sem geta stuðlað að auknu loftslagsréttlæti.
  • Vilji nemandi sem situr í ytri hringnum leggja eitthvað til málanna getur hann sest á auða stólinn í innri hringnum og sagt frá sinni skoðun.
  • Þegar hann er búinn með mál sitt fer hann til baka á stólinn sinn í ytri hringnum og aðrir geta komið inn í umræðuna með því að setjast á auða stólinn. Þannig geta orðið líflegar umræður þar sem allir hafa möguleika á að taka til máls á skipulagðan hátt.

Heimild um fiskibúrs-aðferðina og fleiri gagnlegar kennsluaðferðir má finna hér.

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is