Nemendur skoða hvernig menntun barna í Bangladesh og aðstæður verkafólks tengist. Tengja við heimsmarkmiðin, koma auga á vandamál og finna lausnir. Lagt er upp með að málefninu sé komið á framfæri á valdeflandi og skapandi hátt.
Markmið:
Skoða ólík vandamál og hvernig þau tengjast og hvernig lausn á einu vandamáli getur leyst annað vandamál.
Að fá betri skilning á heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun.
Efla hnattræna vitund.
Framkvæmd
Einstaklingsvinna
- Lesið um um menntun barna í Bangladesh hér
- Kynnið ykkur aðstæður verkafólks sem vinnur í fataframleiðslu í Bangladesh hér
- Skoðið sérstaklega Heimsmarkið 4 – Menntun fyrir alla ásamt undirmarkmiðum þess. Setjið það í samhengi við aðstæðurnar í Bangladesh
Hópavinna
- Notið stórt sameiginlegt blað, skrifið Heimsmarkmiðin á blaðið.
Við hvert heimsmarkmið skrifið þið setningu hvernig þetta heimsmarkið tengist menntun barna og aðstæðum verkafólks í fataframleiðslu. - Ræðið og svarið eftirfarandi spurningum:
- Hvernig tengist menntun barna í Bangladesh og fataframleiðsla verkafólks?
- Hvert er vandamálið og hvað er hægt að gera til þess að leysa það?
- Hvernig eru aðstæður fólksins?
- Af hverju er ekki hægt að breyta aðstæðum fólksins, eru einhverjir hagsmunir í húfi?
- Hvað finnst ykkur um þessi vandamál, tengjast þau ykkur á einhvern hátt?
- Hvaða lausnir koma til greina?
- Getið þið sent áskorun/skilaboð til eigenda fyrirtækja sem framleiða föt eða til þeirra sem kaupa vörur af þeim að versla aðeins við verksmiðjur sem virða mannréttindi og réttindi barna.
- Viðbót við verkefnið
- Ef áhugi er til staðar og tími leyfir geta nemendur unnið verkefnið áfram. Nemendur ræða í hópum hvaða skilaboð eða kröfur þeir vilja senda til stjórnmálamanna, fatafyrirtækja eða einstaklinga í vestrænum löndum. Sérstaklega sterkt er ef nemendur senda skilaboðin í raun.
- Í framhaldinu geta nemendur miðlað málefninu áfram, til dæmis með kynningu, erindi eða veggspjöldum til alls skólans, eða unnið áfram með það sem stærra verkefni, t.d. í gegnum Umhverfisfréttafólk.
- Ef áhugi er til staðar og tími leyfir geta nemendur unnið verkefnið áfram. Nemendur ræða í hópum hvaða skilaboð eða kröfur þeir vilja senda til stjórnmálamanna, fatafyrirtækja eða einstaklinga í vestrænum löndum. Sérstaklega sterkt er ef nemendur senda skilaboðin í raun.