Nemendur kanna tilfinningaleg og hugræn tengsl sín við náttúruna, meta eigin reynslu í nærumhverfi. Nemendur velta fyrir sér hvernig hegðun þeirra getur stuðlað að sjálfbærni og verndun náttúru.
Markmið:
Að meta og virða náttúruna á dýpri hátt.
Skoða tilfinningaleg og hugræn tengsl við náttúruna.
Hugsa um sjálfbærni og umhverfislega ábyrgð.
Framkvæmd
- Farið í göngutúr í nærumhverfi skólans, hver nemandi velur þrjá hluti í náttúrunni sem vekur jákæða tilfinningu. Skrifið stuttan texta um hlutina, hvað eru hlutirnir og útskýrðu hvers vegna þeir vekja jákvæða tilfinningu.
- Skrifaðu hugleiðingu um gönguferðina t.d. hvernig leið þér í náttúrunni, lærði ég eitthvað nýtt af náttúrunni í dag, hvað vil ég gera til þess að vernda náttúru.
Tenging við náttúru – sjálfskoðun
Svarið spurningunum og skoðið niðurstöðu bekkjarins.
Merktu við það sem á best við þig:
1 Alls ekki sammála, 2 Frekar ósammála, 3 Hvorki né, 4 Sammála, 5 Mjög sammála
1.Mér finnst ég vera hluti af náttúrunni.
1 ☐ 2 ☐ 3 ☐ 4 ☐ 5 ☐
2.Mér líður vel þegar ég er úti í náttúrunni.
1 ☐ 2 ☐ 3 ☐ 4 ☐ 5 ☐
3.Ég tek eftir litlum atriðum í náttúrunni, t.d. fuglum, plöntum, hljóðum.
1 ☐ 2 ☐ 3 ☐ 4 ☐ 5 ☐
4.Mér finnst náttúran skipta mig máli.
1 ☐ 2 ☐ 3 ☐ 4 ☐ 5 ☐
5.Ég hef áhuga á að læra meira um náttúruna.
1 ☐ 2 ☐ 3 ☐ 4 ☐ 5 ☐
6.Ég vil leggja mitt af mörkum til að vernda náttúruna.
1 ☐ 2 ☐ 3 ☐ 4 ☐ 5 ☐
7.Ég finn ró og vellíðan í náttúrunni.
1 ☐ 2 ☐ 3 ☐ 4 ☐ 5 ☐
8.Ég eyði tíma úti vegna þess að mér finnst það gott.
1 ☐ 2 ☐ 3 ☐ 4 ☐ 5 ☐
9.Ég hugsa um hvernig hegðun mín hefur áhrif á náttúruna.
1 ☐ 2 ☐ 3 ☐ 4 ☐ 5 ☐
10.Ég tel að maður læri mikið með því að fylgjast með náttúrunni.
1 ☐ 2 ☐ 3 ☐ 4 ☐ 5 ☐