Náttúruljóð

Nemendur fara út í náttúruna, ímynda sér að þeir séu lífvera á svæðinu, skynja umhverfið og semja ljóð um reynslu sína einir eða í hópi.

Tími: 1-2 kennslustundir

Aldur: miðstig og unglingastig

Tæki og tól: Blað eða bók til að skrifa í og skriffæri.

Markmið:

Að nemendur átti sig á því fjölbreytta lífríki sem er í þeirra nærumhverfi.

Framkvæmd:

Nemendur fara út og ímynda sér að þeir séu önnur lífvera og skrifa síðan ljóð. Þau geta unnið verkefnið ein eða í hópi. Farið er út og fundið notalegt svæði á skólalóðinni, í garði, fólkvangi eða annars staðar þar sem nýtur náttúrulegs umhverfis. Öll hugsa sér lífveru sem heldur til á svæðinu, hvort það sem er búsvæði hennar eða staður til fæðuöflunar. Allir eiga að loka augunum í nokkrar mínútur og ímynda sér að þau séu lífveran í sínu eðlilega umhverfi.

Hægt er að leiðbeina þeim með nokkrum orðum eða láta þau alveg ein um ímyndun sína. Öll fá fimm mínútur til að finna stað og „verða“ lífveran. Þau ímynda sér hve gömul lífveran getur orðið og velta fyrir sér eiginleikum hennar. Ef um dýr er að ræða ímynda þau sér ferðir þess, fæðuöflun og hvernig plöntur og önnur dýr líta út í augum þess.

Þegar þessari ígrundun er lokið skrifa nemendur stutt ljóð um lífveruna sína.

Ljóðin mega vera órímuð stef eða rímuð. Gaman getur verið að spreyta sig á mismunandi ljóðaformum.

Eins er hægt að yrkja hópljóð: Öll hugsa um eina lífveru. Hver og einn leggur til eitt orð. Einn eða fleiri nemendur, eða kennarinn, raða orðunum í ljóð á meðan hinir ræða hvernig það var að „vera“ þessi lífvera.

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is