öðruvísi jólaósk

Öðruvísi jólaóskir

Í þessu verkefni hugleiða þátttakendur hvað væru stærstu jólaóskir þeirra fyrir Jörðina, lífríkið og mannkynið og skoða hvað þyrfti að gera til þess að þessar jólaóskir gætu orðið að veruleika.

Markmið:

Að þátttakendur hugsi stórt og vítt um öðruvísi jólaóskir, sem færir hugann frá eigin neyslu að aðgerðum til að stuðla að velferð mannkyns og Jarðarinnar

Að þátttakendur þjálfist í því að rökstyðja mál sitt á hnitmiðaðan hátt

Að þátttakendur velti fyrir sér leiðum til að raungera ósk sína 

Framkvæmd

  1. Nemendur hugsa hvers þeir óska fyrir Jörðina, lífríkið og mannkynið. Hver og einn býr til þrjár jólaóskir. Óskirnar geta tengst heimsmarkmiðum, einhverju í lífi þeirra eða málefnum annars staðar á jörðinni. Af óskunum þremur velur hver og einn eina ósk, skrifar hana niður á nafnspjald ásamt stuttri útskýringu á óskinni. Afhverju valdir þú þessa ósk? Þegar nafnspjöldin eru tilbúin, ganga nemendur um stofuna og stoppa tveir saman, þeir segja hvor öðrum frá óskinni sinni, halda síðan áfram og finna nýja félaga, þetta er endurtekið 3-5 sinnum.
  2. Næst velja nemendur 4-5 mismunandi óskir (eða færri ef hópurinn er minni) til að skoða betur í heimskaffi. Ef unnið er með 4 óskir. Þá verða til 4 hópar með 4-5 í hóp.
    Velja þarf einn hópstjóra í hverjum hóp. Hver hópur býr til hugarkort. Hvað þarf að gerast til þess að óskin geti orðið að veruleika? Hvaða þurfa ólíkir aðilar, stofnanir, stjórnvöld, almenningur að gera til þess að óskin rætist?

    Eftir 10 mínútur er hópunum stokkað upp, hópstjórinn verður alltaf í sama hóp. Hóparnir breytast 3-4 sinnum, þannig að flestir taka þátt í öllum hópunum.
  3. Hver hópur kynnir sína niðurstöður og kennarinn stýrir umræðum.
  4. Nemendur geta komið niðurstöðum verkefnisins á framfæri t.d. með því að skrifa í skólablaðið/vefinn, setja niðustöður á töflu í skólanum eða búa til frétt um málið.
  5. Mjög áhrifaríkt væri að vinna áfram með þetta verkefni á þann hátt að nemendur, annað hvort sem hópur eða einstaklingar, sendi bréf til fólks í stjórnunarstöðum eins og stjórnmálafólks, sveitarstjórnarfólks, forsvarsfólks fyrirtækja eða einfaldlega til fjölskyldu sinnar. Þar munu þau skrifa niður sína helstu “öðruvísi jólaóskir” (kannski þrjár óskir) og spyrja viðkomanda þá: Hvað ert þú tilbúin að gera til þess að hjálpa mér/okkur í því að þessi ósk verður að veruleika?

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is