Ólík heimili

Við lifum við ólíkar aðstæður eftir því hvar á Jörðinni við búum. Í þessu verkefni skoða nemendur misjafnar aðstæður fólks.

Aldur: miðstig og unglingastig

Tími: 1 – 2 kennslustundir

Markmið:

Nemendur átti sig á ólíkum lífsgæðum fólks eftir búsetu

Framkvæmd:

Kennarinn les eftirfarandi texta eða ræðir um innihald hans við nemendur:

Það er margt sem hefur áhrif á híbýli og aðstæður fólks á Jörðinni má nefna loftslag, veðurfar, gróðurfar og náttúruauðlindir. Ólík veðurfar hefur áhrif, sem dæmi þá þurfum við á Íslandi hús sem halda vel vindum og regni og eru upphituð. Ísland er ríkt land og fólk býr við góðar aðstæður. Á heitari stöðum Jarðarinnar þurfa íbúar að skýla sér fyrir sól, hita og regni. Á mjög heitum slóðum eru gluggar oft hafði litlir til þess að sólin komist ekki inn. Í sumum húsum blása vindar í gegnum híbýlin eða þau eru loftkæld, en loftkæling er ekki í boði fyrir alla. Húsin fyrr á tímum, áður fyrr skipti máli hvaða auðlindir voru til á staðnum til þess að byggja hús t.d. var ís notaður til þess að byggja hús á Grænlandi, torf og grjót á Íslandi og viður og pálmalauf í Indónesíu. Í dag er hráefni flutt á milli landa, því eru hús í heiminum úr líkari hráefnum nú en áður.
Auðlindir skipta máli. Auðlindir hafa líka áhrif á aðstæður í húsunum eins og t.d. hitun, kælingu, rennandi kalt og heitt vatn, rafmagn, salernisaðstöðu, eldhús o.s.frv.
Efnahagur skiptir einnig máli. Heimili fólks eru líka ólík eftir efnahag. Stór hluti mannkyns býr við fátækt og hefur varla í sig og á. Margir hafa ekki aðgang að hreinu vatni eða rafmagni. Fátækustu löndin á jörðinni eru flest að finna í Afríku og Asíu en þau ríkustu í Evrópu, Norður- Ameríku, Ástralíu og Austu-Asíu. Alls staðar hvar sem þú býrð í heiminum hefur efnahagur áhrif á hvernig húsum fólk býr
.

Spurningar sem gott er að velta fyrir sér með nemendahópnum áður en farið er af stað í hópavinnu

Hvað er heimili? Hverjir búa saman? Hvernig fjölskyldur eru til? Hvernig eru heimili mismunandi? T.d. stærð, byggingarefni, gluggar, hönnun. Hvaða munur er á heimilum á Íslandi, Afríku, Indlandi, Grænlandi, Ameríku? Hvernig eru aðstæður mismunandi á heimilum t.d. Salerni, eldhús, rennandi vatn, rafmagn. Búa allir á Jörðinni við góðar aðstæður? Af hverju ekki? Hvaða aðstæður geta skert lífsgæði fólks?

Hópavinna

Byrjið á því að skoða ólíka lifnaðarhætti og búsetu fólks hér

Setjið ykkur í spor fjölskyldu í ákveðnu landi.

Kynnið ykkur aðstæður fólks í landinu sem þið völduð

Skrifið texta um fjölskylduna sem býr á heimilinu.

Hverjir búar á heimilinu?

Í hvaða landi býr hún?

Er hún fátæk eða rík?

Lýsið híbýlum hennar

Hvernig eru aðstæður hennar?

Hvaða áhugamál hafa fjölskyldumeðlimir?

Veljið eitt af eftirfarandi

1.Búið til heimilið úr endurnýtanlegu hráefni og látið lýsingu á fjölskyldunni fylgja með, gott er að styðjast við listann hér að ofan. Þegar allir hópar hafa búið til útfærslu af heimili þá er upplagt að halda sýningu í skólanum.

2. Setjið ykkur í ólík hlutverk og takið upp hlaðvarp. Sá sem tekur viðtalið spyr spurninga út í lifnaðarhætti og lífið í landinu sem fjölskyldan býr, gott er að styðjast við listann hér að ofan.

3. Búið til myndasögu um fjölskyldu og takið fram þau atriði sem tekinn eru fram í listanum hér að ofan.

Verkefnið er unnið út frá hugmyndum úr verkefni sem Húsaskóli gerði með nemendum á miðstigi

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is