Plastkapphlaup

Plastkapphlaup

Nemendur fara í plastkapphlaup í 15 mínútur. Þeir greina hvaðan ruslið kemur og hafa samband við fyrirtæki sem framleiddu eða seldu hlutinn. Þó að við getum gert margt sjálf til að draga úr plastmengun þá verður plastvandinn seint leystur af einstaklingum. Stjórnvöld og fyrirtæki bera mikla ábyrgð og þau þurfa að hjálpa til.

Markmið:

Að nemendur læri um ábyrgð fyrirtækja og stjórnvalda þegar kemur að því að leysa plastvandann.

Framkvæmd

  1. Farið í plastkapphlaup í 15 mínútur og reynið að tína eins mikið af plasti og þið getið.
  2. Þegar heim í stofu er komið, flokkið plastið eftir gerð og uppruna. Svarið spurningum.
    • Hvaða tegund af plasti finnum við utandyra? Hægt að nota skráningarblað frá Umhverfisstofnun.
    • Hvaðan kemur það?
    • Hvernig barst það hingað?
    • Hver framleiddi það? (Hver bjó það til?)
    • Hver á að passa að plastið fari ekki út í náttúruna?
    • Hvað geta fyrirtæki gert til að minnka framleiðslu á plasti?

Hvernig ávörpum við stjórnvöld og fyrirtæki?

Útfærslur
Skrifa bréf til fyrirtækja
Nemendur skrifa bréf til þess fyrirtækis sem framleiðir/selur mest af því plasti sem þeir fundu. Nemendur geta bent fyrirtækinu á hvað það getur gert til þess að minnka plast og hjálpa hafinu. Það er hægt að láta nokkrar umbúðir fylgja með sem sönnun. Það má senda tölvupóst með myndum í viðhengi eða hafa samband við fyrirtækið á samfélagsmiðlum.

Leiðbeina sveitastjórnum/ráðamönnum
Nemendur skrifa bréf til sveitarstjórnar/stjórnvalda og segja frá niðurstöðum sínum og benda á mikilvægi þess að vernda hafið. Nemendur geta bent á nokkrar lausnir sem þeim dettur í hug að geti gagnast þeim sem ráða.

Nemendur í Grunnskóla Snæfellsbæjar skoruðu á bæjarstjórn að bæta við flokkunartunnum á útivistarsvæði í hjarta Ólafsvíkur. 

Fara í heimsókn og bjóða upp á umhverfismat
Skipuleggja heimsókn þar sem nemendur framkvæma umhverfismat með fulltrúum fyrirtækja eða sveitarstjórna. Hægt er að nýta við gátlista Grænfánans um neyslu og hringrásarhagkerfi.

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is