Sjálfbærni

Nemendur kynnast hugtakinu sjálfbærni, þremur stoðum hennar og skipuleggja sjálfbært samfélag þar sem samfélag, efnahagur og náttúra eru í jafnvægi innan þolmarka Jarðar.

Markmið:

Að skilja hugtakið sjálfbærni

Að þekkja þrjár stoðir sjálfbærni

Þekkja þrjár stoðir sjálfbærni

Skipuleggja sjálfbært samfélag

Framkvæmd

Sjálfbærni fjallar um að nýta auðlindir Jarðar, þannig að við uppfyllum þarfir okkar í dag án þess að taka frá komandi kynslóðum. Sjálfbærni snýst um að samfélag og efnahagur þrýfist innan þeirra marka sem náttúran setur.

  1. Skrifið á miða það sem þið haldið að sjálfbærni þýðir, setið hugmyndirnar á töfluna og ræðið.
  2. Svarið þessum spurningum:
    • Útskýrið með ykkar orðum hvað hugtakið sjálfbærni merkir
    • Teiknið upp þrjár stoðir sjálfbærrar þróunar og segið hvað hver og ein þýðir
    • Hvað er þolmarkadagur Jarðar?
    • Hvenær var þolmarkadagur Jarðar árið  1971, 2020, 2025?
    • Hvenær er þolmarkadagur jaðrar í Japan, Ghana, Luxemburg, af hverju stafar þessi munur á milli landa?
    • Veldu þrjú samfélagsleg fyrirbæri t.d. ferðalög, fatakaup, fótbolta og útskýrðu hvernig það hefur áhrif á efnahag, samfélag og náttúru. Nefnið kosti og galla.
  3. Farið í göngutúr og skoðið nágrenni skólans. Skoðið hvernig hverfið er skipulagt. Er mikil bílaumferð, er þjónusta í nágrenninu? Hvernig er landslagið? Er einhver náttúra sjáanleg? Er hverfið notalegt? Er þægilegt að ganga um hverfið? Hvernig líður þér í þessu umhverfi? Væri hægt að skipuleggja það á betri máta?
  4. Ímyndið ykkur eyju þar sem engin manneskja býr. Þið fáið það verkefni að skipuleggja eyjuna fyrir íbúabyggð, markmiðið er að hafa hana eins sjálfbæra og hægt er. Hafið í huga þrjár stoðir sjálfbæni, að efnahagur og samfélagslegar þarfir rýmist innan þolmarka Jarðarinnar.
    • Teiknið eyjuna eða gerið módel
    • Setjið inn landslag, fjöll, tún, læki, brekkur.
    • Það sem þarf að skipuleggja á eyjunni er t.d. götur, hús, skóla, læknisþjónustu, sundlaug, matvöruverslun, orkugjafa, sorpmál, samgöngur, landbúnað, matvörur, ræktun, dýrahald, stjórnarfar, skólamál og löggæslu.
    • Það sem þið ákveðið þarf að vera rökstutt t.d hvaðan kemur orkan sem verður á eyjunni? Hér er t.d ekki nóg að segja: Það verða vindmyllur á eyjunni. Útskýrið af hverju þið veljið vindmyllur, hverjir eru kostir og gallar við vindmyllur.
    • Útbúið eyjuna t.d. teikna eða gera módel. Skrifið greinargerð, 600-1000 orð, þar sem eyjan er kynnt og þið útskýrið þá þætti sem taldir voru upp í verkefnalýsingunni.

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is