Nemendur vinna með loftslags- eða umhverfisvandamál sem þau velja sér sjálf eða hafa unnið með í öðru verkefni eins og t.d. Kryfjum vandamálið. Nemendur skoða mismunandi leiðir til að bregðast við vandamálunum og greina hvaða aðgerðir einstaklingar, fjölskyldur, skólar, sveitarfélög og stjórnvöld geta farið í.
Tími: 1-2 kennslustund
Aldur: miðstig, unglingastig, framhaldsskóli og háskóli
Markmið:
Að nemendur leiti lausna við því umhverfisvandamáli sem þau hafa valið sér (t.d. loftslagsbreytingar, ofnotkun auðlinda, mengun, líffræðilegur fjölbreytileiki o.fl.).
Að nemendur átti sig á að ábyrgð og lausnir liggja á mörgum sviðum samfélagsins, ekki eingöngu hjá einstaklingum.
Framkvæmd:
Notast má við skelina eða nemendur teikna sjálfir upp sína útgáfu að skelinni.
Lykilspurningar
- Hvað geta stjórnvöld gert til að bregðast við þessu umhverfisvandamáli?
- Hvaða stefnumótun eða lög gætu hjálpað til?
- Hvað getur skólinn gert til að draga úr áhrifum sínum og stuðla að lausnum?
- Hvernig getur samfélagið eða fjölskyldan þín tekið þátt í að bæta ástandið?
- Hvernig getur þú sjálf/ur haft jákvæð áhrif?
- Hvaða lausnir eru þegar til og hvaða nýjar hugmyndir gætu hjálpað?
Aðferð
- Nemendur afla sér upplýsinga um málefnið og skoða mismunandi mögulegar lausnir: einstaklingsbundnar, félagslegar, tækni- og stjórnsýslulegar.
- Nemendur skrifa hugmyndir inn í skelina:
- Ég sjálf/ur
- Fjölskyldan
- Skólinn
- Sveitarfélag/stjórnvöld
- Samfélagið/heildarlausnir
- Nemandi velur eitt atriði sem honum finnst raunhæft að framkvæma sjálfur og gerir áætlun um framkvæmdina.
- Nemandi velur annað atriði sem hann vill koma á framfæri við fjölskyldu, skóla eða stjórnvöld, t.d. með bréfi, kynningu eða myndræna skýringu af lausn.