Verkefnið krefst þess að nemendur taki afstöðu og ræði persónulega ábyrgð í sjálfbærnimálum. Nemendur þjálfast í að færa rök fyrir máli sínu út frá ákvörðunum.
Markmið:
- Að fá nemendur til að velta fyrir sér hvað einstaklingurinn getur gert til að stuðla að sjálfbærara samfélagi
- Að efla gagnrýna hugsun, umræðu og persónulega ábyrgð í loftslags- og umhverfismálum
Framkvæmd
- Setjið númer í hvert horn stofunnar: 1, 2, 3 og 4
- Kennari les upp spurningu og fjóra svarmöguleika
- Nemendur velja það svar sem passar þeim best og ganga í hornið með viðeigandi númer
- Þegar allir hafa valið:
Kennari getur beðið nemendur um að útskýra val sitt
Hægt er að ræða kosti og áskoranir hvers valkosts
Minna á að engin svör eru röng, markmiðið er ígrundun
Spurningar
1. Samgöngur
Hvað ert þú tilbúin/n að gera til að minnka kolefnisspor þitt vegna samgangna?
- Hjóla eða ganga meira
- Nota almenningssamgöngur
- Fljúga minna
- Ekki breyta neinu
2. Matarneysla
Hvað ert þú tilbúin/n að gera til að minnka kolefnisspor þitt vegna matarneyslu?
- Nýta matinn betur og minnka matarsóun
- Minnka kjötát
- Kaupa aðallega innlendan mat
- Ekki breyta neinu
3. Fataneysla
Hvað ert þú tilbúin/n að gera til að minnka kolefnisspor vegna fataneyslu?
- Kaupa sjaldnar ný föt
- Kaupa notuð föt
- Fara með föt sem ég nota ekki á nytjamarkað
- Ekki breyta neinu
4. Tækjaneysla
Hvað ert þú tilbúin/n að gera til að minnka kolefnisspor vegna tækjaneyslu?
- Kaupa sjaldnar ný tæki
- Nýta eldri tæki sem aðrir eiga
- Fara með gömul tæki í endurvinnslu
- Ekki breyta neinu
5. Loftslagsaðgerðir
Hvað ert þú tilbúin/n að gera til að vekja athygli á loftslagsmálum?
- Mótmæla
- Skrifa grein eða færslu
- Ræða við fjölskyldu og vini um málin
- Ekki gera neitt
6. Skólinn
Hvað viltu gera í skólanum þínum til að vinna að umhverfis- og sjálfbærnimálum?
- Taka virkan þátt í umhverfisnefnd
- Halda upplýsingafund fyrir nemendur
- Skipuleggja viðburð í skólanum
- Ekki gera neitt
Hugmyndir af umræðulokum
Var eitthvað sem kom þér á óvart?
Var erfitt að velja? Af hverju?
Hvað teljið þið hafa mest áhrif – litlar persónulegar breytingar eða stærri samfélagsaðgerðir?