Umhverfisvottanir á pappa

Umhverfisvottanir

Nemendur kynna sér ólíkar umhverfisvottanir á vörum, þekkja helstu merkingar og koma auga á mögulegan grænþvott.

Markmið:

Að skoða hvað ólíkar umhverfisvottanir á vörum þýða

Að verða meðvitaðri neytandi

Framkvæmd

Hópavinna:

  1. Hver hópur skoðar eina tegund af umhverfisvottun og kannar hvað vottunin þýðir, hvaða vörur geta fengið slíka vottun, er þetta mikilvæg vottun. Hóparnir deila upplýsingum með bekknum.

    Dæmi um vottanir: Svanurinn, FairTrade, BREEAM, FSC, Organic EU, Plastic Free
  2. Farið í verslun í nágrenni skólans. Finnið tíu vörur sem eru vottaðar með umhverfismerkjum, takið mynd af vörunni og merkinu.
  3. Útbúið glærukynningu með ljósmyndunum, ein ljósmynd á hverri glæru, útskýrið hvað merkið heitir? Hvað merkir það? Er varan sjálfbær, lífræn, heilnæm, sanngjörn eða áreiðanleg? Er merking vörunnar grænþvottur? Hafið eina glæru í lokin sem eru hugleiðingar um vottanir. Til hvers eru vottanir? Hefur það áhrif á hvaða vöru fólk kaupir? Hafa vottanir áhrif á hvað þú kaupir? Nefndu dæmi um grænþvott? Af hverju stunda sum fyrirtæki grænþvott?

Notið þessar síður til þess að fá upplýsingar um umhverfisvottanir:
Umhverfisstofnun
Ecolabelindex

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is