Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 

Markmið:

Að nemendur kynnast uppruna matarins sem þeir borða og velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 

Framkvæmd

  1. Veldu máltíð eða matartegund sem þú vilt gera próf á. Það getur verið uppáhaldsmaturinn þinn, það sem þú munt fá að borða í dag eða máltíð sem þú hefur fengið nýlega, morgunmaturinn þinn, einhver drykkur eða millimál.
  2. Teiknaðu máltíðina, taktu mynd af henni eða skrifa niður úr hverju hún samanstendur.

Reyndu svo að svara eftirfarandi spurningum. Hafðu ekki áhyggjur þó þú hafir ekki allar upplýsingar sem þarf til að svara spurningunum. Giskaðu skynsamlega ef á þarf að halda.

  1. Í hvaða landi er maturinn framleiddur? Svaraðu þessu fyrir hverja matartegund sem er í máltíðinni sem þú varst að velja. 
  1. Hversu marga kílómetra þurfti að flytja matinn frá þeim stað sem hann var búinn til þar til hann komst á diskinn þinn? 
  1. Hversu margir plasthlutir voru í umbúðum utan um hráefni máltíðarinnar? 
  1. Hversu miklum mat af disknum þínum var hent í ruslið? (Notaðu fjölda matskeiða sem mælieiningu fyrir magn af mat sem var hent). 

Hópavinna

Þegar þú hefur svarað spurningunum skaltu ræða svörin við samnemendur þína. Að því loknu skulið þið eða bekkurinn skoða saman næstu spurningar.

Umræður í hópum:

  • Hver framleiddi þennan mat? Heldur þú að hann hafi fengið borgað á réttlætanlegan hátt?
  • Hvernig myndi máltíðin okkar líta út ef við værum ekki að flytja inn mat?
  • Af hverju getum við keypt grænmeti og aðrar afurðir frá öðrum löndum þó að sama tegundin sé líka framleidd hér?
  • Þekkið þið eitthvað af mismunandi merkingum? Græna skráargatið, Fair Trade, Blái engillinn, lífrænar vörur, vistvænar vörur?

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is