Vitnisburður um loftslagsmál – Hlutverkaleikur

Vitnisburður um loftslagsmál er hlutverkaleikur þar sem nemendur setja sig í spor mismunandi ungmenna í allskonar löndum og velta fyrir sér þeirra upplifun og hugleiðingum varðandi loftslagsbreytingar.

Markmið:

Að setja sig í spor annarra og átta sig á loftslagsóréttlæti

Framkvæmd

Hver nemandi, eða fleiri nemendur saman, fær úthlutað einu hlutverki sem er lýsing á barni eða ungmenni í ákveðnu landi. Verkefninu fylgja 15 hlutverk og því gott að hafa fleiri en einn í hóp ef nemendur eru fleiri en 15.

Nemendur fá 5 mínútur til þess átta sig á sínu hlutverki. Nemendur eiga að velta fyrir sér hvaða málefni brenna mest á þessu barni, hvernig loftslagsmálin hafa áhrif á líf þess og hvaða skoðun barnið hefur á þeim málum.

Næsta skref er að hver nemandi kynnir sitt hlutverk. Annaðhvort með því að leika það, segja frá með eigin orðum eða einfaldlega bara með því að lesa textann um sitt hlutverk.
Eftir hverja hlutverkakynningu ræðir bekkurinn um stöðu viðkomandi barns.

  • Hvaða breytingar hafa orðið á náttúrunni/umhverfinu og í daglegu lífi hjá þessu barni?
  • Af hverju hafa þessar breytingar átt sér stað?
  • Hvaða framtíðarmöguleika hefur viðkomandi barn?
  • Hvað væri hægt að gera til þess að bæta líf og framtíð þessa barns?

Þegar allir nemendur eru búnir að kynna sitt hlutverk er aftur rætt saman, sérstaklega um það hvað þessi börn eiga sameiginlegt og hvað er ólíkt með þeim. Á þessu stigi er gott að ræða og kynna loftslagsréttlæti.

Ítarefni 

Hamfarahlýnun er stærsta ógnin sem steðjar að börnum og ungmennum heimsins. UNICEF. 

Hvað er loftslagsréttlæti – það sem þú þarft að vita. Landvernd.

The Climate Crisis is a Child Rights Crisis

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is