Nemendur taka virkan þátt í vistheimt með því að kortleggja birkitré, safna og sá fræjum, fylgjast með vexti og öðlast skilning á mikilvægi birkiskóga fyrir jarðveg, líffræðilegan fjölbreytileika og loftslagsaðgerðir.
Loftslagsréttlæti – Rökræður
Hlutverkaleikur þar sem nemendur setja sig í spor annarra og ræða um loftslagsréttlæti. Nemendur eiga að átta sig á hversu margbrotin og flókin mál liggja á bakvið hugtakið loftslagsréttlæti.
Bakrýni
Hugsanaæfing þar sem nemendur ferðast til ársins 2050, ímynda sér lausnir á loftslagsvánni, hugsa aftur á bak með bakrýni, efla von, sköpun og tengsl við náttúruna og hugleiða ábyrgð mannsins. Markmið: Að hugleiða skapandi leiðir sem gætu hjálpað loftslaginu Að hugleiða um samtakamátt mannanna Að sjá fyrir sér framtíð þar sem loftslagskvíði er fortíðarvandi. Framkvæmd Árið er 2050 og við sitjum við eldhúsborðið og við látum hugann reika um liðna tíð. Nú ríkir friður í heiminum og það er liðin tíð að mannfólkið nýti auðlindir jarðar á yfirdrætti. Nú höfum við náð tökum á loftslagsbreytingum og það var nú ýmislegt sem þurfti að gerast svo það tækist. Það gerðist sérstaklega mikið þarna á milli 2021 og 2030. Hvernig fórum við að? AðferðSjá hugsanaæfingu Gunnhildar Fríðu í loftslagsverkfallinu. Nemendur geta skrifað niður nokkrar hugleiðingar á blað og gert hugarkort í sameiningu Um aðferðina: Bakrýni (Backcasting) er aðferð til að hanna framtíðina. Byrjað er að lýsa hvernig hin “fullkomna” framtíð – eða æskilega staða sé og svo er unnið aftur á bak og kennsl borin á þau verkefni, aðgerðir og aðferðir sem gerðu það að verkum að framtíðin varð að veruleika. Leiðarspurningar bakrýni eru; „Ef við viljum ná ákveðnu markmiði, hvaða aðgerða þarf að grípa til að komast þangað?“ og „Hvað þarf að gera til þess að þessi framtíð verið að veruleika og tengist nútíðinni?“.
Jarðvegurinn og ég
Í þessum hlutverkaleik setja nemendur sig í spor mismunandi fólks í heiminum sem hefur ólíka hagsmuni og tækifæri þegar kemur að landnýtingu (landbúnaði, ferðamennsku og fleira).
Taktu afstöðu
Verkefnið krefst þess að nemendur taki afstöðu og ræði persónulega ábyrgð í sjálfbærnimálum. Nemendur þjálfast í að færa rök fyrir máli sínu út frá ákvörðunum.
Heimsmarkmiðin
Verkefni þar sem nemendur kynnast Heimsmarkmiðunum, eflir gagnrýna hugsun og ritun og þjálfar hæfni í að greina samfélagslegar áskoranir og miðla lausnum.
Grænabyggð
Nemendur taka þátt í hlutverkaleik þar sem þeir rökræða um skipulagsákvörðun í sveitarfélagi, læra að skilja ólík sjónarmið og þjálfa lýðræðislega umræðu.
Náttúran og tilfinningar
Nemendur kanna tilfinningaleg og hugræn tengsl sín við náttúruna, meta eigin reynslu í nærumhverfi og velta fyrir sér hvernig hegðun þeirra getur stuðlað að sjálfbærni og verndun náttúru.
Sjálfbærni
Nemendur kynnast hugtakinu sjálfbærni, þremur stoðum hennar og skipuleggja sjálfbært samfélag þar sem samfélag, efnahagur og náttúra eru í jafnvægi innan þolmarka Jarðar.
Umhverfisvottanir
Nemendur kynna sér ólíkar vottanir á vörum, þekkja helstu merkingar og koma auga á mögulegan grænþvott.