Nemendur efla fréttalæsi með því að greina nýlegar fréttir um loftslagsmál, draga fram aðalatriði og útskýra lykilhugtök. Markmið: Að auka fréttalæsi Að þjálfast í að finna aðalatriði í texta Fræðast um umhverfismál Framkvæmd
Hnattræn hlýnun
Nemendur greina muninn á hnattrænni hlýnun og loftslagsbreytingum. Kynna sér orsakir og afleiðingar og miðla þekkingu sinni á fræðilegan og skapandi hátt.
Gróðurhúsaáhrif
Í þessu verkefni læra nemendur hvað gróðurhúsaáhrif eru, muninn á náttúrulegum og auknum gróðurhúsaáhrifum og hvernig losun gróðurhúsalofttegunda hefur áhrif á loftslag Jarðar. Nemendur útskýra hugtökin með mynd eða myndbandi og framkvæma einfalda tilraun til að skoða hvernig gróðurhúsalofttegundir hafa áhrif á hitastig.
Eldfjall á skólalóðinni
Verkefni sem fræðir nemendur um eldvirkni og hvernig jarðvarmi hitar vatn sem við svo notum til upphitunar og böðunar.
Eyjan okkar
Nemendur hanna sjálfbært samfélag á ímyndaðri „eyju“ byggðri á eigin nærumhverfi. Nemendur velta fyrir sér orku-, auðlinda- og samgöngumálum og rökstyðja val sitt með tilliti til sjálfbærni og náttúruverndar.
Vatn fyrir öll?
Vegna gífurlegrar eftirspurnar eftir vatni í landbúnaði og iðnaði er í mörgum löndum gengið mjög nærri grunnvatnsbirgðum auk þess sem mengun grunnvatnsins er víða raunverulegt vandamál. Nemendur skoða aðgengi fólks víðvegar um heiminn að hreinu vatni.
Örplast í vatni
Nemendur fræðast um plastmengun í vatni og hafi. Nemendur skoða hvernig einstaklingar og fyrirtæki geta tekið þátt í því að sporna gegn plastmengun.