Stígðu fram er hlutverkaleikur um mannréttindi, loftslagsréttlæti og umhverfismál. Nemendur kanna mun á stöðu fólks eftir búsetu, kyni, stétt eða áhrifum loftslagsbreytinga. Markmið: Að setja sig í spor annara og átta sig á mismunandi tækifærum og hindrunum hjá fólki í heiminum Framkvæmd Hlutverkaspjöldin eru afhent af handahófi, eitt á hvern nemanda. Nemendur fá tíma til að setja sig inn í sitt hlutverk og hugleiða hvernig æskan var og hvernig daglega lífið er núna, hvernig lífsvenjur þeirrar hlutverk hefur og hvað þeim finnst spennandi og hvað þau hræðist. Nemendur mega ekki segja öðrum frá hlutverki sínu strax. Þegar nemendur hafa kynnt sér hlutverk sín raða þeir sér upp hlið við hlið í beina röð. Lesnar eru upp nokkrir fullyrðingar. Í hvert sinn sem nemendur geta svarað setningu með „já“ mega þeir taka skref áfram. Annars verða þeir að vera þar sem þeir eru og mega ekki færa sig. Í lokin er athugað hver lokastaða hvers hlutverks er, hver nemandi kynnir sitt hlutverk og síðan fara fram umræður um upplifun nemenda og skilaboð þessa leiks. Hlutverk og spurningar Ítarefni Hvað er loftslagsréttlæti? Landvernd Hvernig bitna loftslagsbreytingar á konum? UN Women Íslandi. Worldmapper
Hlutverkaleikur um víðtæk áhrif hnattvæðingar
Hlutverkaleikur sem opnar augu nemenda á þeim áhrifum sem aukin hnattvæðing kann að hafa á matvælaframleiðslu. Nemendur eiga að átta sig á mismunandi hagsmunum og ígrunda hvernig núverandi hagkerfi ýtir undir núverandi framleiðsluhætti. Nemendur ræða síðan hvaða lög og reglur þurfi til þess að breyta slíkum framleiðsluháttum með umhverfið, dýravelferð og hnattrænt réttlæti í huga.
Fræsöfnun og sáning birkifræja
Nemendur taka virkan þátt í vistheimt með því að kortleggja birkitré, safna og sá fræjum, fylgjast með vexti og öðlast skilning á mikilvægi birkiskóga fyrir jarðveg, líffræðilegan fjölbreytileika og loftslagsaðgerðir.
Loftslagsréttlæti – Rökræður
Hlutverkaleikur þar sem nemendur setja sig í spor annarra og ræða um loftslagsréttlæti. Nemendur eiga að átta sig á hversu margbrotin og flókin mál liggja á bakvið hugtakið loftslagsréttlæti.
Jarðvegurinn og ég
Í þessum hlutverkaleik setja nemendur sig í spor mismunandi fólks í heiminum sem hefur ólíka hagsmuni og tækifæri þegar kemur að landnýtingu (landbúnaði, ferðamennsku og fleira).
Taktu afstöðu
Verkefnið krefst þess að nemendur taki afstöðu og ræði persónulega ábyrgð í sjálfbærnimálum. Nemendur þjálfast í að færa rök fyrir máli sínu út frá ákvörðunum.
Grænabyggð
Nemendur taka þátt í hlutverkaleik þar sem þeir rökræða um skipulagsákvörðun í sveitarfélagi, læra að skilja ólík sjónarmið og þjálfa lýðræðislega umræðu.
Eldfjall á skólalóðinni
Verkefni sem fræðir nemendur um eldvirkni og hvernig jarðvarmi hitar vatn sem við svo notum til upphitunar og böðunar.