Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.
Draumaframtíðin mín
Í þessu verkefni láta nemendur sig dreyma um draumaframtíð fyrir okkur og fyrir jörðina. Verkefni sem byggir á bakrýni sem er er gagnleg leið til að takast á við flókin viðfangsefni líkt og loftslagsbreytingar og eru valdeflandi fyrir nemendur.
Hlutverkaleikur um víðtæk áhrif hnattvæðingar
Hlutverkaleikur sem opnar augu nemenda á þeim áhrifum sem aukin hnattvæðing kann að hafa á matvælaframleiðslu. Nemendur eiga að átta sig á mismunandi hagsmunum og ígrunda hvernig núverandi hagkerfi ýtir undir núverandi framleiðsluhætti. Nemendur ræða síðan hvaða lög og reglur þurfi til þess að breyta slíkum framleiðsluháttum með umhverfið, dýravelferð og hnattrænt réttlæti í huga.
Fræsöfnun og sáning birkifræja
Nemendur taka virkan þátt í vistheimt með því að kortleggja birkitré, safna og sá fræjum, fylgjast með vexti og öðlast skilning á mikilvægi birkiskóga fyrir jarðveg, líffræðilegan fjölbreytileika og loftslagsaðgerðir.
Náttúruorð – vasabók
Nemendur fara á einhvern stað úti við til að skrifa í vasabækur sem þeir hafa búið til sjálfir. Vasabókin er sérstök aðferð til að halda til haga minningum og hugmyndum um ýmislegt úti í náttúrunni. Í hana eru skráð hughrif, tilfinningar og athuganir og í þeim geta varðveist mikilvægar upplýsingar. Markmið: Að nemendur fái tækifæri til þess að upplifa og skynja náttúruna Að nemendur þjálfist í skráningum á náttúrufyrirbrigðum sem koma þeim fyrir sjónir Að nemendur tileinki sér aðferðarfræðina á bakvið það að skrá í vasabók Að nemendur geti sett athuganir sínar og lýsingar fram í skrifuðu máli og myndrænt Framkvæmd Efni og áhöld: blöð til þess að útbúa vasabók eða bækur sem hægt er endurnýta sem vasabók, skriffæri Áður en farið er út er föndurpappír og ljósum vélritunarblöðum dreift og nemendur búa til vasabækurnar sínar. Pappírinn og blöðin eru brotin í tvennt og blöðin sett innan í pappakápu. Heftað er meðfram brotinu til að bókin haldist saman. Nemendur fá merkipinna og liti til að þeir geti teiknað á kápuna og skrifað þar nafn sitt og heiti bókarinnar. Einnig má búa til eða kaupa veglegri bækur en þær sem hér hefur verið lýst. Rætt um gildi vasabókar. Í hana eru skráð hughrif, tilfinningar og athuganir en þar geta og varðveist mikilvægar upplýsingar sem hægt er að leita uppi. Þar má finna upplýsingar um breytingar á vistkerfum, gróðurfari og stofnstærðum dýra auk viðhorfs til ýmissa atriða. Hún getur geymt jafnt myndir sem orð. Úti: Farið er út á einhvern notalegan stað með bækurnar og ritföng. Staðurinn gæti verið á skólalóðinni þegar himinn er heiður og blár eða einhversstaðar þar sem nýtur útsýnis til fjalla, yfir vatn eða sjó, næstum hvar sem er frá skólalóð til óbyggða. Talað er við nemendurna um það sem þeir sjá, skynja og taka eftir. Þarna, þegar nemendur sitja hljóðir, getur verið gagnlegt að nota sjónsköpun og eru nemendur þá beðnir að loka augunum og gera sér í hugarlund það sem kennarinn lýsir, í þessu tilfelli eitthvað sem eykur næmni þeirra fyrir staðnum sem þeir sitja á. Dæmi: „Þú ert bláberjalyng á þúfu. Finndu hvernig ræturnar grafa sig djúpt ofan í jarðveginn. Finndu hvernig regnið sem féll í nótt sytrar um jarðveginn í kring um þig. Finndu stóra steininn í moldinni sem þú hefur vafið rætur þínar um. Finndu hvernig golan leikur um lauf þín og sólin hitar þau þegar þú teygir þig í átt til hennar“ Nemendur fá nokkurn tíma, u.þ.b. 15 mínútur er ágætur tími í upphafi, til að byrja að venjast því að nota vasabók. Hægt er að leiðbeina nemendum með einhver verkefni eða hver og einn finnur sér rólegan stað til að teikna eitthvað sem hann eða hún sér. Hægt er að byrja á að skrifa stutta lýsingu eða ljóð um það hvernig þeim finnst að vera úti á þessum til tekna stað og tíma. Mikilvægt er að leggja áherslu á að þetta er þeirra vasabók, þau geta sett í hana það sem þau vilja. Hún er ekki eins og dagbók sem e.t.v. er skrifað í á hverjum degi heldur er þetta sérstök aðferð til að halda til haga minningum og hugmyndum um ýmislegt úti í náttúrunni.
Jarðvegurinn og ég
Í þessum hlutverkaleik setja nemendur sig í spor mismunandi fólks í heiminum sem hefur ólíka hagsmuni og tækifæri þegar kemur að landnýtingu (landbúnaði, ferðamennsku og fleira).
Heimsmarkmiðin
Verkefni þar sem nemendur kynnast Heimsmarkmiðunum, eflir gagnrýna hugsun og ritun og þjálfar hæfni í að greina samfélagslegar áskoranir og miðla lausnum.
Verkefni 3
útdráttur bla bla bla