Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið.
Græna blaðið
Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.
Draumaframtíðin mín
Í þessu verkefni láta nemendur sig dreyma um draumaframtíð fyrir okkur og fyrir jörðina. Verkefni sem byggir á bakrýni sem er er gagnleg leið til að takast á við flókin viðfangsefni líkt og loftslagsbreytingar og eru valdeflandi fyrir nemendur.
Hafðu áhrif
Í verkefninu taka nemendur sig til, hafa áhrif og grípa til aðgerða. Komið þið auga á eitthvað vandamál í ykkar nærumhverfi sem þyrfti að leysa?
Grænþvottur
Grænþvottur á sér stað þegar þeirri ímynd er haldið á lofti að eitthvað sé umhverfisvænna en það raunverulega er. Þetta verkefni fær nemendur til þess að hugsa betur um hversu umhverfisvænar vörur eru raun og veru.
Loftslagsréttlæti – Rökræður
Hlutverkaleikur þar sem nemendur setja sig í spor annarra og ræða um loftslagsréttlæti. Nemendur eiga að átta sig á hversu margbrotin og flókin mál liggja á bakvið hugtakið loftslagsréttlæti.
Bakrýni
Hugsanaæfing þar sem nemendur ferðast til ársins 2050, ímynda sér lausnir á loftslagsvánni, hugsa aftur á bak með bakrýni, efla von, sköpun og tengsl við náttúruna og hugleiða ábyrgð mannsins. Markmið: Að hugleiða skapandi leiðir sem gætu hjálpað loftslaginu Að hugleiða um samtakamátt mannanna Að sjá fyrir sér framtíð þar sem loftslagskvíði er fortíðarvandi. Framkvæmd Árið er 2050 og við sitjum við eldhúsborðið og við látum hugann reika um liðna tíð. Nú ríkir friður í heiminum og það er liðin tíð að mannfólkið nýti auðlindir jarðar á yfirdrætti. Nú höfum við náð tökum á loftslagsbreytingum og það var nú ýmislegt sem þurfti að gerast svo það tækist. Það gerðist sérstaklega mikið þarna á milli 2021 og 2030. Hvernig fórum við að? AðferðSjá hugsanaæfingu Gunnhildar Fríðu í loftslagsverkfallinu. Nemendur geta skrifað niður nokkrar hugleiðingar á blað og gert hugarkort í sameiningu Um aðferðina: Bakrýni (Backcasting) er aðferð til að hanna framtíðina. Byrjað er að lýsa hvernig hin “fullkomna” framtíð – eða æskilega staða sé og svo er unnið aftur á bak og kennsl borin á þau verkefni, aðgerðir og aðferðir sem gerðu það að verkum að framtíðin varð að veruleika. Leiðarspurningar bakrýni eru; „Ef við viljum ná ákveðnu markmiði, hvaða aðgerða þarf að grípa til að komast þangað?“ og „Hvað þarf að gera til þess að þessi framtíð verið að veruleika og tengist nútíðinni?“.
Taktu afstöðu
Verkefnið krefst þess að nemendur taki afstöðu og ræði persónulega ábyrgð í sjálfbærnimálum. Nemendur þjálfast í að færa rök fyrir máli sínu út frá ákvörðunum.
Loftslagsljósmyndir
Nemendur skoða loftslagsljósmyndir af vefsíðunni Climatevisuals, svara spurningum um þær og tengja þær við eigin ljósmynd úr nærumhverfi.
Heimsmarkmiðin
Verkefni þar sem nemendur kynnast Heimsmarkmiðunum, eflir gagnrýna hugsun og ritun og þjálfar hæfni í að greina samfélagslegar áskoranir og miðla lausnum.