Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.
Heimsmarkmiðin
Verkefni þar sem nemendur kynnast Heimsmarkmiðunum, eflir gagnrýna hugsun og ritun og þjálfar hæfni í að greina samfélagslegar áskoranir og miðla lausnum.
Eldfjall á skólalóðinni
Verkefni sem fræðir nemendur um eldvirkni og hvernig jarðvarmi hitar vatn sem við svo notum til upphitunar og böðunar.
Eyjan okkar
Nemendur hanna sjálfbært samfélag á ímyndaðri „eyju“ byggðri á eigin nærumhverfi. Nemendur velta fyrir sér orku-, auðlinda- og samgöngumálum og rökstyðja val sitt með tilliti til sjálfbærni og náttúruverndar.