Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.
Plastkapphlaup
Nemendur fara í plastkapphlaup í 15 mínútur. Þeir greina hvaðan ruslið kemur og hafa samband við fyrirtæki sem framleiddu eða seldu hlutinn. Þó að við getum gert margt sjálf til að draga úr plastmengun þá verður plastvandinn seint leystur af einstaklingum. Stjórnvöld og fyrirtæki bera mikla ábyrgð og þau þurfa að hjálpa til. Markmið: Að nemendur læri um ábyrgð fyrirtækja og stjórnvalda þegar kemur að því að leysa plastvandann. Framkvæmd Hvernig ávörpum við stjórnvöld og fyrirtæki? ÚtfærslurSkrifa bréf til fyrirtækjaNemendur skrifa bréf til þess fyrirtækis sem framleiðir/selur mest af því plasti sem þeir fundu. Nemendur geta bent fyrirtækinu á hvað það getur gert til þess að minnka plast og hjálpa hafinu. Það er hægt að láta nokkrar umbúðir fylgja með sem sönnun. Það má senda tölvupóst með myndum í viðhengi eða hafa samband við fyrirtækið á samfélagsmiðlum. Leiðbeina sveitastjórnum/ráðamönnumNemendur skrifa bréf til sveitarstjórnar/stjórnvalda og segja frá niðurstöðum sínum og benda á mikilvægi þess að vernda hafið. Nemendur geta bent á nokkrar lausnir sem þeim dettur í hug að geti gagnast þeim sem ráða. Nemendur í Grunnskóla Snæfellsbæjar skoruðu á bæjarstjórn að bæta við flokkunartunnum á útivistarsvæði í hjarta Ólafsvíkur. Fara í heimsókn og bjóða upp á umhverfismatSkipuleggja heimsókn þar sem nemendur framkvæma umhverfismat með fulltrúum fyrirtækja eða sveitarstjórna. Hægt er að nýta við gátlista Grænfánans um neyslu og hringrásarhagkerfi.
Heimsmarkmiðin
Verkefni þar sem nemendur kynnast Heimsmarkmiðunum, eflir gagnrýna hugsun og ritun og þjálfar hæfni í að greina samfélagslegar áskoranir og miðla lausnum.
Eldfjall á skólalóðinni
Verkefni sem fræðir nemendur um eldvirkni og hvernig jarðvarmi hitar vatn sem við svo notum til upphitunar og böðunar.
Vatn fyrir öll?
Vegna gífurlegrar eftirspurnar eftir vatni í landbúnaði og iðnaði er í mörgum löndum gengið mjög nærri grunnvatnsbirgðum auk þess sem mengun grunnvatnsins er víða raunverulegt vandamál. Nemendur skoða aðgengi fólks víðvegar um heiminn að hreinu vatni.
Örplast í vatni
Nemendur fræðast um plastmengun í vatni og hafi. Nemendur skoða hvernig einstaklingar og fyrirtæki geta tekið þátt í því að sporna gegn plastmengun.
Hringrás vatns
Verkefni sem kynnir fyrir börnum birtingarmyndir vatns og hringrás þess. Börnin læra hugtök ásamt því að gera athuganir.