Sigurverkefni 2026

Keppnin 2026

Framhaldsskólar

fyrsta sæti
 
Hvað myndir þú gera? – Tölvuleikur.

Tækniskólinn

Stormur Snorrason, Tómas Logi helgason, Húgó Heiðreksson og Elías Bjarni Jensson

Lýsing nemenda: Verkefnið er tölvuleikur til að sýna fólki hversu góðri stöðu þau eru í miðað við aðra.

Umsögn dómnefndar

Hvað myndir þú gera ef?

Frábær hugmynd, sem fær fólk til að horfa á samhengi umhverfisáhrifa og kostnaðar. Sem gengur út á að vega og meta besta kostinn í stöðunni og er það sett upp eins og verið sé að spila með peninga annarsvegar og umhverfisáhrif hinsvegar.

Þetta er mjög áhugaverður vinkill sem vill oft gleymast í umræðunni um umhverfismál. Hönnunin á tölvuleiknum er til fyrirmyndar, með skírskotun bæði í gamaldags tölvuleiki og fjárhættuspil.

Ávanabindandi áhættuspil sem fræðir!

Skoða leik

Framhaldsskólar

annað sæti
 
Umhverfið okkar – Tímarit

Kvennaskólinn í Reykjavík

Þorbjörg Guðný Ásbjarnardóttir, Elísabet Jónsdóttir, Oddrún Ýr Ragnhildardóttir, Eva Óskarsdóttir, Björk Víglundsdóttir og Ingi Ragnar Ingason

Lýsing nemenda: Tímarit með ljósmyndum sem voru teknar og greinum sem tengjast myndunum. Í tímaritinu er lögð áhersla á samgöngur, gervigreind og innfluttar vörur. 

Umsögn dómnefndar

Hér er fjallað um áhrif samgangna, gervigreindar og innfluttra vara á umhverfið okkar. Greinarnar eru myndskreyttar með ljósmyndum, teknum af höfundum tímaritsins, sem tengjast umfjöllunarefnunum. Okkur þótti þetta heilsteypt og vandað tímarit, og ljósmyndirnar binda það saman á afar áhugaverðan hátt. Þær sýndu hversdagslegt nærumhverfi höfunda (og okkar) sem þykir alla jafna ekkert sérstaklega áhugavert til ljósmyndunar, og flestir vilja jafnvel forðast að horfa á. En ljósmyndirnar fanga fegurðina í flutningagámum, skipum, bílnum og öðru með listrænum sjónarhornum. Ljósmyndirnar verða að fallegri seríu þar sem litir og form kallast á.

Lesa tímarit

Framhaldsskólar

þriðja sæti
 
Sporið – Borðspil

Fjölbrautarskóli Vesturlands

Agla Agnarsdóttir, Aníta Sif Flosadóttir, Birgitta Lilja Sigurðardóttir og Hafdís María Arnórsdóttir

Lýsing nemenda: Sporið er bráðskemmtilegt spil fyrir fólk á aldrinum 12 ára og eldri. Tilgangur spilsins er að draga úr loftlagskvíða og efla getu til aðgerða í umhverfismálum.

Umsögn dómnefndar

Metnaðarfullt og skemmtilegt borðspil þar sem tekið er á ýmsum umhverfismálum sem snerta spilendur beint. Á gervigreindar-öld þótt okkur gaman að sjá að spilið var nánast allt handgert og fallega myndskreytt. Spilið bæði hvetur þátttakendur til aðgerða og fær þá til að íhuga sinn lífsstíl og vana. Þetta mætti alveg verða möndlugjöfin í ár!

Val unga fólksins – Framhaldsskólar

Hvað myndir þú gera ef? – Tölvuleikur

Tækniskólinn

Stormur Snorrason, Tómas Logi helgason, Húgó Heiðreksson og Elías Bjarni Jensson

Grunnskólar

fyrsta sæti

Eyðilegging votlendis – Heimasíða

Garðaskóli

Heiða Marín Helgadóttir, Daney Emma Svansdóttir, Birkir Þór Karlsson og Ólafur Ingi Magnússon

Lýsing nemenda: Á vefsíðunni okkar er fjallað um eyðileggingu votlendis, dýralíf í votlendinu, viðtöl sem við tókum, eyðileggingu votlendis, endurheimt votlendis, lausnir okkar o.fl. 

Umsögn dómnefndar

Verkefnið er metnaðarfullt og tekur á mikilvægum málefni. Dómnefnd þykir sérstaklega áhugavert að sjá svo afmarkað umfjöllunarefni tekið fyrir.

Það er augljóst að í verkefninu liggur ítarleg og vönduð undirbúningsvinna. Sérstakur metnaður skín í gegn í mjög góðum viðtölum sem hleypa lífi í efnið og dýpka skilning lesandans. Framsetningin er afar skýr, sem skilar sér í frábærri upplýsingagjöf sem er í senn fræðandi og áhrifarík.

Skoða heimasíðu

 

Grunnskólar

annað sæti

Mengun hafsins – Málverk

Garðaskóli

Hafdís, Daníela, Hrafnar og Aron

Lýsing nemenda: Málverk sem sýnir áhrif sjávarmengunar á vistkerfi sjávar og lífverurnar sem þar búa. Glærur með sem fara yfir efnið.

Umsögn dómnefndar

Verkefnið er áhrifamikið. Það er sterkt og grípur augað samstundis auk þess sem það sýnir okkur á áhrifaríkan hátt hvernig tveir gjörólíkir heimar mætast á einni og sömu myndinni. Það er einkar fallegt að sjá hvernig litirnir í verkinu þróast frá því að vera litríkir og tærir yfir í það að verða gráir og móðukenndir.

Höfundar hafa sýnt mikla natni við vinnu sína og augljóst er að mikið hefur verið lagt upp úr öllum smáatriðum, sem gerir það að verkum að boðskapurinn ratar beint til áhorfandans.

Grunnskólar

þriðja sæti

Undir ísnum – skúlptúr

Grunnskóli Bolungarvíkur

Sigurborg Sesselía Skúladóttir, Katrín Lind Rúnarsdóttir og Vagnfríður Elsa Kristbjörnsdóttir

Lýsing nemenda: Undir ísnum er líkan gert til að sýna hvað það er mikið plast og drasl sem endar í sjónum. Ísjakinn, sem stendur ofan á kassanum, táknar hversu mikil blekking er á öllu málinu. Ísinn er í raun og veru plastpoki sem stendur upp úr og ísbjörninn táknar hungur dýranna sem hafa ekkert annað en rusl til að borða.

Umsögn dómnefndar

Þetta er áhrifamikið verk sem grípur augað strax við fyrstu sýn og minnir okkur á að ekki er allt sem sýnist. Verkið sem svipar til ljósmynda sem við höfum séð áður nálgast viðfangsefnið út frá nýjum og ferskum vinkli.

Skúlptúrinn er sterk áminning sem lætur mann virkilega hugsa um allt það ósýnilega í umhverfinu okkar; hversu margt það er sem við tökum ekki eftir en á samt svo stóran þátt í þeim loftslagsvanda sem við stöndum frammi fyrir.

Val unga fólksins – Grunnskólar

Mengun hafsins – Málverk

Garðaskóli

Hafdís, Daníela, Hrafnar og Aron

Rannsóknarblaðamennska ársins

Gervigreind ekki tala við mig – Myndband

Tækniskólinn

Emil Arthúr Júlíusson, Logi Karl Oddsson, Þröstur Þór Jónsson, Veigar Þór Hallgrímsson og Guðmundur Þór Svavarsson

Lýsing nemenda: Verkefnið er myndbandsverkefni sem fjallar um áhrif gervigreindar á umhverfið og loftslagið. Einnig er rætt hvernig sporna má við þeim slæmu áhrifum sem gervigreind hefur á umhverfið og loftslagið.

Umsögn dómnefndar

Mikið og metnaðarfullt efni þar sem snert er á ýmsum hliðum gervigreindarinnar og umhverfisáhrifum hennar. Þetta er sett upp eins og fréttaskýringaþáttur þar sem er meðal annars langt og ítarlegt viðtal við stjórmálamann.

Okkur fannst flott að sjá að þarna var ekki bara verið að hamra á neikvæðum áhrifum, heldur var einnig fjallað um úrlausnir.

Horfa á myndband

Myndband ársins

Umhverfismaðurinn Kári – Myndband

Tálknafjarðarskóli

Agnes Ýr Guðbjartsdóttir, Katrín Hugadóttir, Sigfríður Inga Bjarnadóttir og Victoria Rós Sæmundsdóttir

Horfa á myndband

Viðurkenningar fyrir listsköpun 2026

Beings of the Dawn – Ljósmynd

Fjölbrautarskólinn við Ármúla

Loki Úlfur Skarphéðinsson

Lýsing nemenda: Beings of The Dawn shows my idea of the “zombies” of the future. The picture depicts that we will all drown in the plastic that we accumulate and eventually perish. We are the only hope for the Earth, as can be seen by the hand that desperately holds the Earth up and away from the plastic. 

Skoða mynd

Viðurkenningar fyrir listsköpun 2026

Hvalveiðar – Málverk

Borgarholtsskóli

Úlfur Kjalar Kormáksson

Lýsing nemenda: Verkið er abstrakt, opið fyrir túlkun og abstrakt grípur oftast athygli. Rauði liturinn táknar blóð og/eða ofbeldi. Dökk svæði minna á mengun eða dauða, svartur sandur notaður til að tákna náttúruna og sjóinn

Skoða málverk

Viðurkenningar fyrir listsköpun 2026

Útrýming íslenskra fugla – Myndasaga

Borgarholtsskóli

Jóhanna Eldey Óskarsdóttir og Kári Björn Reykdal

Lýsing nemenda: Við rannsökuðum útrýmingarstöðu íslenskra fugla og gerðum myndasögu um lundann sem er í útrýmingarhættu

Skoða myndasögu

Viðurkenningar fyrir listsköpun 2026

Fæ ég framtíð – innsetning

Fjölbrautarskóli Vesturlands

Arndís Elfa Pálsdóttir, Sandra Björk Freysdóttir og Sigríður Sól Þórarinsdóttir

Lýsing nemenda: Verkið snertir á ofneyslu í fataiðnaðinum, hraðtísku og áhrif á umhverfið og framtíðarkynslóðir. Barnarúmið á að endurspegla sakleysi næstu kynslóða sem við höfum málað út í horn, sem og vekja óhuggnalega tilfinningu áhorfenda. Ljóðið lætur lesendum vonandi líða óþæginlega og vekja til umhugsunar þar sem við erum öll sek um að kaupa óþarfa flíkur. Blómvöndurinn í bensínbrúsanum á að varpa ljósi á eyðileggingu náttúrunnar og umhverfisspori. 

Skoða innsetningu

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is