1. sæti í framhaldsskólum
Í framhaldsskólum sigruðu nemendur Tækniskólans þeir, Stormur Snorrason, Tómas Logi helgason, Húgó Heiðreksson og Elías Bjarni Jensson. Með tölvuleikinn Hvað myndir þú gera ef?
Umsögn dómnefndar:
Frábær hugmynd, sem fær fólk til að horfa á samhengi umhverfisáhrifa og kostnaðar. Sem gengur út á að vega og meta besta kostinn í stöðunni og er það sett upp eins og verið sé að spila með peninga annarsvegar og umhverfisáhrif hinsvegar.
Þetta er mjög áhugaverður vinkill sem vill oft gleymast í umræðunni um umhverfismál. Hönnunin á tölvuleiknum er til fyrirmyndar, með skírskotun bæði í gamaldags tölvuleiki og fjárhættuspil.
Ávanabindandi áhættuspil sem fræðir!
1. sæti í grunnskólum
Í grunnskólum sigruðu nemendur í Garðaskóla þau Heiða Marín Helgadóttir, Daney Emma Svansdóttir, Birkir Þór Karlsson og Ólafur Ingi Magnússon. Með heimasíðuna Eyðilegging votlendis
Umsögn dómnefndar:
Verkefnið er metnaðarfullt og tekur á mikilvægum málefni. Dómnefnd þykir sérstaklega áhugavert að sjá svo afmarkað umfjöllunarefni tekið fyrir.
Það er augljóst að í verkefninu liggur ítarleg og vönduð undirbúningsvinna. Sérstakur metnaður skín í gegn í mjög góðum viðtölum sem hleypa lífi í efnið og dýpka skilning lesandans. Framsetningin er afar skýr, sem skilar sér í frábærri upplýsingagjöf sem er í senn fræðandi og áhrifarík.



Dómnefndina í ár skipuðu
Agnes Wild
Teymisstjóri barna- og ungmennaþjónustu – Krakkarúv
Kanema Erna Mashinkila
Sviðshöfundur
Þórunn Árnadóttir
vöruhönnuður
Val unga fólksins er sér dómnefnd og hana skipuðu
Lísa Margrét Gunnarsdóttir
Forseti Landssambands íslenskra stúdenta – LÍS
Alexander Dýri Eyjólfsson
Umhverfisfulltrúi Sambands íslenskra framhaldsskólanema
Leona Iguma
Fulltrúi Youth UN Women á Íslandi
Verðlaunahafar í vali unga fólksins
Í framhaldsskólum var það tölvuleikurinn Hvað myndir þú gera ef? eftir þá Storm Snorrason, Tómas Loga Helgason, Húgó Heiðreksson og Elías Bjarna Jensson úr Tækniskólanum
Í grunnskólum var það verkið Mengun sjávar, eftir þau Hafdísi, Daníelu, Hrafnar og Aron úr Garðaskóla



Rannsóknarblaðamennska ársins
Í ár voru veitt verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins og fengu þeir Emil Arthúr Júlíusson, Logi Karl Oddsson, Þröstur Þór Jónsson, Veigar Þór Hallgrímsson og Guðmundur Þór Svavarsson nemendur frá Tækniskólanum fyrir fræðsluþátt um gervisgreind.
Umsögn dómnefndar:
Mikið og metnaðarfullt efni þar sem snert er á ýmsum hliðum gervigreindarinnar og umhverfisáhrifum hennar. Þetta er sett upp eins og fréttaskýringaþáttur þar sem er meðal annars langt og ítarlegt viðtal við stjórmálamann.
Okkur fannst flott að sjá að þarna var ekki bara verið að hamra á neikvæðum áhrifum, heldur var einnig fjallað um úrlausnir.










Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju með vel unnin störf og einnig öllum þeim sem sendu verkefni í keppnina. Hér má sjá öll þau verkefni sem unnu til verðlauna í ár ásamt umsögnum dómara.
Við hlökkum til að taka á móti nýjum verkefnum að ári og hvetjum þá sem hafa áhuga á að kynna sér verkefnið betur að gera það hér fyrir neðan eða hafa samband með því að senda póst á umhverfisfrettafolk@landvernd.is