eyja

Eyjan okkar

Nemendur hanna sjálfbært samfélag á ímyndaðri „eyju“ byggðri á eigin nærumhverfi. Nemendur velta fyrir sér orku-, auðlinda- og samgöngumálum og rökstyðja val sitt með tilliti til sjálfbærni og náttúruverndar.

Tími: 4–6 kennslustundir

Aldur: miðstig, unglingastig og framhaldsskóli

Markmið:

Að nemendur þjálfist í gagnrýnni hugsun um eigið samfélag og hlutverk sitt í því.
Að nemendur tileinki sér lykilhugtök sem tengjast sjálfbærni og vistvænum lífsstíl.
Að nemendur skoði daglegt líf út frá umhverfisfræðilegu sjónarhorni.
Að nemendur þekki helstu orkugjafa og geti metið kosti og galla þeirra út frá sjálfbærni og náttúruvernd.

Framkvæmd

Verkefnalýsing til nemenda

Ímyndið ykkur að hverfið, bærinn eða bæjarfélagið ykkar sé eyja sem hefur sett sér markmið um að verða vistvæn á næstu tveimur árum. Hlutverk ykkar er að hanna sjálfbært samfélag á þessari „eyju“ þar sem íbúar lifa góðu lífi án þess að ganga á auðlindir Jarðar.

Kortlagning og skipulag

  1. Teiknið svæðið eða notið kort.
  2. Veljið staðsetningar fyrir mikilvæga þjónustu, t.d. heilbrigðisþjónustu, skóla, matvöruverslun og sundlaug.
  3. Útskýrið val ykkar á staðsetningum.

Orkumál

  1. Greinið hvaðan eyjan fær orku.
  2. Rökstyðjið val á orkugjöfum og metið kosti og galla þeirra (t.d. vindmyllur, sólarorka, vatnsafl o.fl.).
  3. Útskýrið hvernig íbúar geta dregið úr orkunotkun.

Umhverfis- og auðlindamál

  1. Hvernig er sorphirðu og úrgangsmálum háttað?
  2. Hvaðan koma matvörur og nauðsynjavörur?
  3. Hvernig er ræktunarlandi og landbúnaði háttað? (kostir/gallar)
  4. Hver er afstaða hópsins til náttúruverndar?

Samgöngur og samfélagsskipulag

  1. Setjið fram áætlun um samgöngur innan eyjunnar.
  2. Útskýrið hvernig samfélagið er byggt upp:
    • hver hefur vald eða stjórnar,
    • hvernig skólamálum, heilbrigðismálum og löggæslu er háttað,
    • hvaða þjónusta er forgangsatriði.

Afrakstur verkefnis

Nemendur velja sjálfir hvernig þeir kynna verkefnið. Dæmi um framsetningu:

  • myndband
  • glærusýning
  • fyrirlestur
  • blaðagrein
  • líkan eða veggspjald
  • tölvuleikur, t.d. í Minecraft
  • eða önnur skapandi útfærsla (sjá lista yfir „Skapandi skil“).

Auk kynningar skal skila 1–2 bls. greinargerð þar sem eyjan er kynnt og fjallað um lykilatriði verkefnisins.

Gagnlegar heimildir:

Vefsíða Grænfánans

Þemu – graenfaninn.is

Hugtök – graenfaninn.is


Eðlisfræði 1

https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/edlisfraedi1/#36

https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/edlisfraedi1/#76

Eðlisfræði 2

https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/edlisfraedi2/#76

https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/edlisfraedi2/#102

Eðlisfræði 3

2.kafli í heild  – https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/edlisfraedi3/#40

Maður og náttúra

https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/madurognattura/16

https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/madurognattura/18

https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/madurognattura/26

https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/madurognattura/56

Kvistir

Sorpa

Umhverfisstofnun

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is