Örplast í vatni

Nemendur fræðast um plastmengun í vatni og hafi. Nemendur skoða hvernig einstaklingar og fyrirtæki geta tekið þátt í því að sporna gegn plastmengun.

Aldur: unglingastig og framhaldsskóli

Tími: 2-3 kennslustundir

Markmið:

Að nemendur fræðist um plast og áhrif þess á lífríki í og við vatn

Að nemendur velti fyrir sér hvernig hægt sé að draga úr örplastmengun

Framkvæmd:

Lesið bls 22-25 í bókinni Hreint haf, athugið að hér má einnig nálgast hljóðbók.

Umræðuspurningar

  • Hvernig getum við dregið úr plastmengun í hafi?
  • Hvaða plasti getum við sleppt?
  • Af hverju er sagt að maðurinn ógni hafinu?
  • Hvernig endar plastið í sjónum?
  • Hvað gætum við notað í staðinn?
  • Hvernig getum við hjálpað hafinu?

Einstaklingsverkefni

Hvað getur þú gert til þess að draga úr örplastmengun í vatni? Punktaðu niður nokkur atriði og hafðu með þér í hópavinnuna

Hópaverkefni

  • Hvað er það helst í ykkar lífi sem býr til örplastsmengun? Hvað getið þið gert til að minnka hana? Ræðið og skráið niður helstu niðurstöður
  • Dettur ykkur í hug fyrirtæki eða valdafólk sem gæti hjálpað?
  • Búið til áætlun um hvernig þið getið dregið úr örplast mengun og/eða hvatt fyrirtæki til þess. Hér er tækifæri til þess að hafa áhrif t.d. með því að senda á fyrirtæki eða valdfólk hugmyndir ykkar.

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is