hendur að halda á vatni

Vatn fyrir öll?

Vegna gífurlegrar eftirspurnar eftir vatni í landbúnaði og iðnaði er í mörgum löndum gengið mjög nærri grunnvatnsbirgðum auk þess sem mengun grunnvatnsins er víða raunverulegt vandamál. Nemendur skoða aðgengi fólks víðvegar um heiminn að hreinu vatni.

Tími: 1-2 kennslustund
Aldur: unglingastig og framhaldsskóli

Markmið:

Nemendur fræðast um aðgengi fólks að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu í ólíkum löndum og hvernig efnahagur, umhverfi og samfélagsaðstæður hafa áhrif á þessi grundvallarréttindi.

Nemendur íhuga hvaða aðgerðir einstaklingar, skólar og samfélög geta gripið til til að styðja við aðgengi að hreinu vatni á heimsvísu og leggja fram hugmyndir um raunhæfar leiðir til að stuðla að umbreytingu eða stuðningi.

Framkvæmd

Notast er við verkefnið Dollar Street er verkefni sem var stofnað af Gapminder Foundation og hefur það að markmiði að sýna hvernig fólk lifir við mismunandi fjárhagsstöðu um allan heim. Verkefnið lýsir heimilislífi fjölskyldna út frá ólíkum efnahag, frá mjög fátækum heimilum upp í mjög auðuga. Hægt er að skoða myndir sýna daglegt líf einstaklinga, heimili og húsnæði í ýmsum löndum.

Nemendur fara inn á vef Dollar Street og skoða myndir af heimilum frá fátækum, meðal og auðugum heimilum í mismunandi löndum.

Notaðu leitargluggann til að skoða t.d. “water” (vatn) eða “toilet” (salernisaðstaða) og berðu saman mismunandi heimili.

Veljið eitt land og eina fjölskyldu úr hverjum efnahagsflokk til að bera saman aðgengi að vatni og hreinlætisaðstöðu.

Skrifaðu stutta samantekt (ca. 150–200 orð) þar sem þú:

  • Lýsir hvað þú hefur séð og borið saman.
  • Útskýrir hvaða áskoranir fólkið stendur frammi fyrir.

Í framhaldinu er tilvalið að skoða hvort nemendur á Íslandi geti á einhvern hátt aðstoðað við að auka aðgengi annarra að hreinu vatni. Dæmi eru um að Grænfánaskólar hafi safnað fyrir vatnsbrunnum með því að safna áheitum.

Tengd verkefni

Votlendisbingó

Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Landlæsis-bingó

Landlæsis-bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningunum sjálfir og/eða finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Jarðvegsbingó

Jarðvegsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Uppruni matarins – Hvað er á disknum mínum?

Verkefni þar sem nemendur kynnast uppruna matarins sem við borðum og þeir velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið. 
jarðvegsrof

Jarðvegur – hvað ógnar honum og hvað getum við gert?

Í þessu hópverkefni eru nemendur að afla sér upplýsingar um ástand jarðvegs og hverjar eru orsakirnar ef hann er ekki í góðu ástandi. Þeir velta fyrir sér í hvaða ástandi hann ætti að vera og hvernig væri hægt að stuðla að því.

Græna blaðið

Nemendur gefa út rafrænt fréttablað Græna blaðið sem fjallar um umhverfismál. Með það að markmiði að auka víðsýni og efla virðingu nemenda fyrir náttúruauðlindum og umhverfi og um leið fræða aðra.

Grænfáninn og Umhverfisfréttafólk eru verkefni hjá Landvernd

© 2025 Vefsíðugerð: webdew.is