Nemendur kynnast hugtakinu sjálfbærni, þremur stoðum hennar og skipuleggja sjálfbært samfélag þar sem samfélag, efnahagur og náttúra eru í jafnvægi innan þolmarka Jarðar.
Loftslagsfréttir
Nemendur efla fréttalæsi með því að greina nýlegar fréttir um loftslagsmál, draga fram aðalatriði og útskýra lykilhugtök. Markmið: Að auka fréttalæsi Að þjálfast í að finna aðalatriði í texta Fræðast um umhverfismál Framkvæmd
Hnattræn hlýnun
Nemendur greina muninn á hnattrænni hlýnun og loftslagsbreytingum. Kynna sér orsakir og afleiðingar og miðla þekkingu sinni á fræðilegan og skapandi hátt.
Gróðurhúsaáhrif
Í þessu verkefni læra nemendur hvað gróðurhúsaáhrif eru, muninn á náttúrulegum og auknum gróðurhúsaáhrifum og hvernig losun gróðurhúsalofttegunda hefur áhrif á loftslag Jarðar. Nemendur útskýra hugtökin með mynd eða myndbandi og framkvæma einfalda tilraun til að skoða hvernig gróðurhúsalofttegundir hafa áhrif á hitastig.
Lífverur og loftslagsbreytingar
Nemendur velja sér lífveru og skoða hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa á hana. Nemendur velta fyrir sér því hvað það er sem lífverur þurfa og hvað sé hægt að gera til þess að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga.
Eyjan okkar
Nemendur hanna sjálfbært samfélag á ímyndaðri „eyju“ byggðri á eigin nærumhverfi. Nemendur velta fyrir sér orku-, auðlinda- og samgöngumálum og rökstyðja val sitt með tilliti til sjálfbærni og náttúruverndar.
Kryfjum vandamálið
Í þessu verkefni vinna nemendur í hópum að því að skilgreina eitt loftslagsvandamál sem þeir velja sjálfir. Nemendur skoða vandann frá ólíkum sjónarhornum, gera hugarkort, greina orsakir og afleiðingar og meta hvaða þætti er auðvelt eða erfitt að breyta. Verkefnið hjálpar nemendum að átta sig á að loftslagsmál tengjast ekki aðeins veðurfari, heldur einnig lífríki, samfélagi, menningu, stjórnmálum og daglegu lífi fólks. Aldur: Miðstig, unglingastig og framhaldsskólastig Tími: 1-2 kennslustundir Markmið: Að nemendur geti skoðað loftslagsvandamál frá ýmsum hliðum, skilgreint vandann og greint orsakasamhengi. Að nemendur geti unnið saman í hóp, tekið þátt í þankahríð og skipulagt hugmyndir á hugarkorti. Að nemendur geti metið hvaða þættir eru auðveldir eða erfiðir að breyta og valið viðfangsefni sem þeir vilja vinna frekar með í framhaldsverkefnum. Framkvæmd: Kennari skipuleggur 3–4 manna hópa.Nemendur velja loftslagsvandamál á einn af eftirfarandi vegu: Leið 1: Hópur velur saman:Nemendur ræða og ákveða sameiginlegt vandamál. Leið 2: Val eftir áhugasviði:Allir skrifa eitt vandamál á miða. Kennari flokkar miðana og býr til hópa eftir sameiginlegum áhuga. 1. Skilgreinum vandamálið Hópurinn reynir að skilgreina: Kennari styður við umræðu og tryggir að allir fái að tjá sig. Mikilvægt er að skrifa allt niður án þess að dæma hvort það sé „rétt“ eða „rangt“. 2. Gerð hugarkorts – þankahríð Nemendur setja vandamálið í miðjuna og safna hugmyndum um: Allir leggja sitt af mörkum, ekkert rétt eða rangt. Því meiri breidd því betra. Nemendur skoða hugarkortið og lita þætti eftir því hversu erfitt er að breyta þeim. Hópar ræða saman um hvers vegna sumt er erfitt en annað auðvelt. Nemendur velja nú einn þátt úr hugarkortinu sem er gulur eða grænn.Þessi þáttur verður viðfangsefni í framhaldsverkefnum (t.d. Skelin, Umhverfisfréttafólk.). Kennari hvetur nemendur til að velja þátt sem þeir hafa áhuga á og trúa að þeir geti haft áhrif á.Umræður Umræður Að loknu verkefninu eða milli verkþátta er gott að ræða m.a.: Dæmi um vandamál sem nemendur geta valið Miklum mat er hent í skólanum. Kjötframleiðsla hefur mikil umhverfisáhrif. Bruni jarðefnaeldsneytis veldur hlýnun jarðar. Stórfyrirtæki sem menga mikið beina ábyrgðinni oft að einstaklingum. Mengandi alþjóðafyrirtæki eru með starfsemi á Íslandi. Stjórnvöld leyfa mengun stórfyrirtækja en leggja áherslu á persónuleg markmið einstaklinga. Endurvinnsla í skólanum er óskipulögð eða illa nýtt. Of mikið rusl safnast í skólanum eftir hádegismat. Mikið af raftækjum er hent í stað þess að gera við þau. Ljós og tæki eru skilin eftir í sambandi í kennslustofum, sem veldur orkusóun. Flutningur á mat og vörum langar vegalengdir eykur losun gróðurhúsalofttegunda. Vaxandi rafnotkun í samfélaginu kallar á aukna orkuvinnslu. Vistkerfi eins og votlendi hverfa vegna framkvæmda eða ræktunar. Mengun hafsins ógnar lífríki fiska og fugla. Loftslagsbreytingar valda súrnun sjávar, sem hefur áhrif á líf í hafi. Engar aðgerðir eru til að sporna við sóun á skólalóð (t.d. illa gengið um, brotnir bekkir, ónýtt efni). Lítið samráð er í skólanum við nemendur um umhverfismál.