Nemendur sjá um að skipuleggja sjálfbærnidaga fyrir unglingastig grunnskóla, framhaldsskóla eða háskóla. Um er að ræða einn til tvo heila kennsludaga og sjá nemendur um að skipuleggja viðburði fyrir samnemendur sína, fá fyrirlesara, sýna kvikmyndir, hafa kynningarbása, vinnustofur, veggspjöld o.s.frv.
Aldur: Unglingastig, framhaldsskóli og háskóli
Tími: Undirbúningur 6-10 kennslustundir, viðburðurinn er 1 – 2 dagar
Markmið:
Að nemendur safni og vinni með upplýsingar um náttúru- og sjálfbærnimál, og öðlist skilning á helstu áskorunum sem samfélagið stendur frammi fyrir.
Að nemendur geti greint málefni bæði í nærumhverfi og hnattrænu samhengi, tekið rökstudda afstöðu og lagt til raunhæfar úrbætur.
Að nemendur skipuleggi og framkvæmi viðburð, og þannig þjálfist í skipulagi, ábyrgð, frumkvæði og samvinnu.
Að nemendur geti metið eigin þátttöku og áttað sig á mikilvægi samábyrgðar þegar kemur að umhverfis- og samfélagsmálum.
Framkvæmd:
Nemendur velja sér málefni til að vinna með í verkefninu. Eftirfarandi eru dæmi um málefni sem vinna má með:
Vatn, orka , loftslagsbreytingar og samgöngur, lífbreytileiki, neysla og hringrásarhagkerfið, hnattrænt réttlæti, vistheimt, náttúruvernd, átthagar og landslag
Nemendur skipta sér niður í smærri hópa sem heldur utan um ákveðin verkefni tengd viðburðinum. Hópurinn skilar jafnframt greinargerð þar sem fjallað er um það málefni sem hann vann með. Greinargerðin skal sýna fram á skilning á viðfangsefninu og þeim áskorunum sem skólinn, nærumhverfið og heimurinn allur stendur frammi fyrir innan málefnisins. Nemendur koma með tillögur að úrbótum á þessum áskorunum sem þeir geta stuðlað að innan skólans og í sínu nærumhverfi.
Mikilvægt að nemendur geri sér grein fyrir þeim áskorunum sem umhverfið stendur frammi fyrir innan málefnisins og hvernig það tengist sjálfbærri þróun. Mikilvægt er að nemendur kynnist ýmsum hliðum málefnisins og myndi sér upplýsta skoðun á því. Einnig er mikilvægt að nemendur öðlist skilning á þeim ferlum og lögmálum sem gilda um málefnið enda „skilningur á þeim takmörkunum, ásamt ferlum, lögmálum og hringrásum í náttúrunni, mikilvægur grundvöllur þess að okkur takist að vinna eftir hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar“ (Mennta- og menningarmálaráðuneytið: 2011).
Hlutverk nemenda
Nemendur sjá um framkvæmd verkefnisins. Þeir vinna að mestu sjálfstætt með stuðning kennara. Þeir viða að sér efni sem tengjast því málefni sem þeir völdu sér. Lesa sig til um það, skoða vefsíður tengdar verkefninu og hafa samband við aðila, s.s. samtök og stofnanir sem tengjast málefninu með einhverjum hætti. Öll vinna nemendanna miðar að því sameiginlega markmiði að setja saman dagskrá fyrir sjálfbærnidagana. Jafnframt skila nemendur greinargerð um málefnið sem þeir völdu sem sýna á fram á skilning á viðfangsefninu.
Tillaga að tímaáætlun:
Fyrsti tími – Kynning á verkefni
Kennari kynnir verkefnið og útskýrir til hvers er ætlast af nemendum. Kennari kynnir jafnframt efni sem nemendur geta nýtt sér á námsneti. Nemendur skipta sér í hópa (3-4 saman) og velja sér málefni til að vinna með. Einn hópstjóri er valinn í hverjum hóp.
Annar og þriðji tími – Verkefnavinna
Nemendur afla sér upplýsinga og lesa sig til um það málefni sem þeir völdu sér, skoða vefsíður og hafa samband við aðila sem tengjast málefninu. Mikilvægt er að nemendur öðlist skýra sýn og skilning á málefninu sem þeir völdu sér.
Fjórði tími – Sameiginlegur vinnufundur
Nemendur kynna það málefni sem þeir völdu og útskýra í stuttu máli hvers þeir hafa orðið vísari um efnið. Hér gefst tími til umræðna og skipulagningar, þar sem hópar geta skipst á hugmyndum og vangaveltum.
Fimmti til sjöundi tími – Verkefnavinna
Nemendur halda áfram vinnu við verkefnið með það að markmiði að setja saman dagskrá sjálfbærnidaganna í samráði við kennara.
Áttundi tími – Sameiginlegur vinnufundur
Hver hópur gerir grein fyrir hvað hann hyggst bjóða upp á á sjálfbærnidögunum. Hér gefst tækifæri til umræðna og deilingu hugmynda á milli hópa. Í lok þessa dags á endanleg dagskrá að vera tilbúin.
Níundi til tíundi tími – Lokafrágangur
Hér fer fram lokafrágangur við skipulagningu sjálfbærnidaga.
Ellefti til tólfti tími – Sjálfbærnidagar
Síðustu einn til tveir dagar þriðju vikunnar eru sjálfbærnidagarnir sjálfir. Nemendur sjá þar um allt utan umhald. Þeir eru til staðar fyrir gestafyrirlesara og aðra sem mæta og stýra þeim viðburðum sem í boði eru fyrir samnemendur sína.